Kvöldvakt þessa viku
Nína var að byrja í skólanum aftur eftir frí. Frekar mikið að læra heima núna. Vonandi verður þetta ekki svona þangað til hún fær sumarfrí. Hún var mjög dugleg á leikjanámskeiði sem var í síðari vikunni í páskafríinu. Hún vann í teiknikeppni fyrir mynd af hesti sem hún teiknaði með trélitum. Svo eru mörg önnur dýr á myndinni, svaka litríkt og skemmtilegt. Frábær árangur það hjá dömunni. Fékk verðlaun fyrir og allt, leir, svona bolta til að kasta með bandi í sem kemur alltaf aftur til baka og piparmyntudropa frá bankanum.
Alex er loksins kominn heim, hann kom á laugardaginn um hádegisbilið, alveg á réttum tíma í matinn. Ég var að baka marmaraköku þegar hann kom, alveg fyrirmyndar húsmóðir. Æðislegt þegar þetta hittir svona á. Í dag er hann í fríi, þurfti að skreppa til læknis í morgun að láta fjarlægja fæðingarblett af bakinu, gekk allt vel. Þannig að við fengum okkur rúnstykki og höfðum það gott í morgunmatnum. Nína var búin að leggja á borð og undirbúa morgunmatin og fór meira segja í bakaríið fyrir okkur, algjör dúlla. Hún vaknaði eitthvað of snemma, eflaust fyrir spenningi að mæta í skólann eftir frí.
Nú eru þau að fara í leiðangur því Nína fer í reiðtíma í dag. Við erum alveg hálftíma að keyra þangað sem íslensku hestarnir eiga heima. Alveg frábært veður í dag fyrir að fara í reiðtúr.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home