Hææææææææææ
Gleðilega páska, sem eru nú búnir og allir útsprengdir af súkkulaðiáti með meiru. Æi það er nú yndislegt að maður geti látið sér líða vel og raðað í sig góðgæti og verið í góðra vina hópi.
Eins og ég sá var ég ekki eina eiginkonan sem var ein yfir hátíðirnar, en sem betur fer koma okkar menn jú heim eftir vinnuna sína. Ég hlakka til að Alex komi heim, hann kemur um næstu helgi. Ég ætla að kaupa eitthvað til að grilla góða steik. Það er búið að vera svo geggjað veður hjá okkur. Sól, hiti og bjútiful. Alveg eins og hjá ykkur!!!
Nína er á námskeiði á vegum bæjarins fyrir börn í skólafríinu. Svaka gaman, kom heim máluð í framan eins og tígrisdýr og með svona snúru fléttaða í hárið. Búin að kynnast stelpu sem hún fór svo strax að leika við. En á mánud. byrjar skólinn svo aftur og þá hefst alvaran en í fríinu er gaman að fara út að leika eftir mat í sól og sumaryl.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home