Hækkandi sól
Já það er svoo gaman þegar sólin fer að sýna sig meira. Það er skemmtilegra að vera úti og hjóla eða ganga.
Ég er orðin mjög spennt að koma heim eftir nokkra daga. Það verður gaman að heimsækja nýju börnin, Heiðrún(http://frontpage.simnet.is/bippi/myndir/Snorri%20og%20Hekla.jpg), Anna Sigga (www.dalkot.com), Hildur (vonandi) og fara í hjúkkubrunch til Systu, heimsækja fjölskyldumeðlimi, skoða ástandið á gamla húsinu okkar á Reynigrundinni (sjá vesen www.siggaola.blogspot.com),fara á Reunion (www.argangur1974.blogspot.com) og enda svo þreytt í flugvélinni á leið til amsterdam beint eftir partý. Ég verð ekki eldri, skipulagskonan ég. Ekki láta mig plana neitt fyrir ykkur, það endar í svona vitleysu, að fara úr partý beint á flugvöllinn.
Heyriði það er svooo gaman að vera að spá og spekulera í þessu í sambandi við gaggóið að maður verður alveg svaka spenntur.
Best að fara að skipuleggja,,,,,,


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home