miðvikudagur, mars 23, 2005

Fönný Bönný

Það var rosa gaman að fá systkini mín í heimsókn um daginn. Alltaf gaman að fá fólk í heimsókn, ég meina það er nóg pláss og enginn veit hvenær við flytjum heim. Mamma var nú pent að biðja mig að koma bara sem fyrst, þetta færi ekki vel í mig að vera hér úti svona langt frá öllu skemmtilega fólkinu á Íslandi. Það er auðvitað alveg rétt hjá henni.



Þessi mynd er tekin á Brauhaus Stephanus en þeir eru með mjög sérstakann bjór sem þeir brugga sjálfir, mjög góður. Til okkar kom Fönný Bönný en hún er páskahéri sem er frá útvarpinu á svæðinu. Þetta er eitthvað páskadjók hjá þeim að vera með páskahérann og eru að gefa öllum harðsoðin egg sem er búið að lita. Hér er það páskahérinn sem kemur með öll litlu súkkulaði eggin í litla körfu og felur í garðinum. Svo fara allir út í garð að leita á páskadag og það er stemming í kring um það. Alveg eins og það var stemming í gamla daga að leita að páskaegginu sínu sem var svo vel falið! Ég man einu sinni var egg í stóru "Borgundarhólms" klukkunni heima hjá okkur...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters