Helgin hjá tengdafjölskyldunni
Var ansi lífleg. Það fylgir alltaf mikið líf hverri fjölskylduskemmtun, hverrar fjölskyldu sem er! Mér finnst gott að hitta fjölskylduna af og til. Við keyrðum seint á föstudeginum af stað og vorum komin til tengdó um hálf tólfleitið. Eftir mjög erfiða keyrslu, snjókoma, rigning, rok og allt í myrkri, ekki skemmtilegt það, en útaf því að Alex er svo góður ökumaður þá gekk allt vel hjá okkur.
Hjá tengdó var spjallað frameftir og sofið út. Á laugardeginum kom svo Christoph bróðir Alex og kærasta hans með lítið barn sem þau voru að passa. Þetta var alveg yndislegt barn, rólegt og þægt og mjög gaman að passa það. En ég og Alex fórum í það að vera Christoph innan handar með þetta barn allan daginn eða þar til kærasta hans var búin að keppa í blaki um kvöldið.
Á sunnudeginum fórum við svo til tengdapabba og borðuðum góðan mat. Heimferðin gekk mjög vel, gott veður mestaf og við vorum komin heim í heiðardalinn um hálf níu eftir stutt stopp á McD.
Í gær var svo reiðtími hjá Nínu og mikið að læra en það fer illa saman....
Reikningspróf á miðvikudaginn, seinasta próf var ekki nógu gott hjá Nínu en hún ætlar að taka þetta næst.
Ég hlakka til að fá Óla bróðir í heimsókn en hann kemur á fimmtudaginn, flýgur á Amsterdam og fer aftur á sunnudagsmorgun. Ég er reyndar að vinna um helgina en það er nú ekki svo mikið, eins og allir segja.....
Bið ykkur vel að lifa, ykkar Helga


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home