Sumarfrí, vorið og Óli í heimsókn.
Við erum búin að festa okkur á eitt sumarhús í Svíþjóð fyrstu vikuna í ágúst. Þetta er í suður Svíþjóð og er lítið raðsumarhús í lítilli sumarhúsabyggð með árabát, gufu, baðströnd hjá vatninu sem er 100 metra í burtu frá húsinu (næstum hægt að hoppa beint útí úr rúminu). Ohh ég hlakka svo til, þetta verður svo næs. Ég byrja í fríi þessa helgi þar sem við fáum húsið og við ætlum svo að taka góða viku í að lalla heim, koma við hjá kunningjum í Danmörku, kíkja í tívolí og eitthvað svona. En vikan í sumarhúsinu verður í sumarhúsinu, skógar í kring þar sem eru ber og sveppir til að tína, æ lof it. Verður pottþétt hjá okkur.
Í gær var eiginlega vorbyrjun hjá okkur. Eftir langan og skrýtin vetur, frekar kalt, smá snjór í langann tíma og svona leiðindi. Það hefði verið betra ef það hefði verið almennilegur snjór og ekki svona rakur kuldi, fer alveg í gegn um merg og bein. En í gær var um 20 stiga hiti, HITABYLGJA, hehe. En það var alveg frábært, ég skrapp með Nínu og við fengum okkur eina kúlu ítalskan ís útí bæ. Það var alveg troðið í bænum, allir í sumarstuði. En það var gola þannig að maður var ekki að KAFNA..... gaman að þessu.
Já og í dag kemur Óli, ég er að bíða eftir að Nína komi heim og þá förum við á móti honum. Hann ætlar að koma í lest til Enschede, eða ég sagði honum að gera það því annars hefði ég komið svo seint að sækja hann og dagurinn bara búinn.... en hann féllst á að koma í lest og við sækjum hann þangað. Ætli hann verði ekki kominn þangað um 14:30 þannig að við erum komin hingað heim um fjögur eða jafnvel hálf fjögur. best að skella sér í sturtu svo að maður kafni nú ekki úr svitafýlu, þá er nú skárra að kafna úr hita, eða hvað, hehe, ein alveg að flippa á því.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home