Saumó
Það var gaman að fá þrjár konur í heimsókn í dag. Það var hluti af saumó sem ég er í hér í Þýskalandi. Ein forfallaðist sem ætlaði að mæta til viðbótar og þrjár voru búnar að láta vita að þær kæmust ekki. Þannig að það var bara sæmileg mæting. Fámennt en góðmennt. Við höfðum bara gaman saman. Ég bauð uppá þennan mjög svo sérstaka en dýrindis rækjurétt sem hægt er að sjá hjá mömmu rokk ég var með svona saltkex með sem var bara fínt. Svo var ég með gulrótarköku (ekki úr hagkaupsbókinni) sem var líka mjög góð og svo ekta brúna (uppskrift frá ömmu).
Inga Björk mætti, hún er frá Húsavík, átti heima við hliðina á honum Lúlla. Inga Mihm mætti hún er frá Reykjavík líka hún á heima nálægt Bjarnhildi hún er frá Keflavík en þær komu í samfloti. Það var gaman að hitta þær og ég er strax farin að hlakka til að hitta þær 1.maí hjá Ingu B. í Recklinghausen. Nína var heima mestmegnið af tímanum sem þær voru. Alex var farin til Leipzig en hann kemur á miðvikudag. Hann var svooo svekktur að vera ekki heima þegar saumó var en svona er lífið það verður ekki á allt kosið!
Takk fyrir skemmtilegan dag stelpur...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home