Sumarfrí
Heldur betur skrýtið það. Ég er send í sumarfrí frá og með þriðjud. í næstu viku. Það eru svo fáir í fríi í vinnunni og deildastýran spurði hvort ég hefði eitthvað á móti því að taka sumarfrí? Ég er ekki alveg að skilja þetta en hvað um það maður lætur allt yfir sig ganga vinnulega séð er það ekki bara?
Mig langaði að setja inn málshættina sem voru inni í páskaeggjum okkar fjölskyldumeðlimanna þessa páskana.
Helga Ekkert er nýtt undir sólinni
Alex Hver hefur sína byrði að bera
Nína Hól gleður heimskan
Spes ekki satt?
Nína er á fullu að undirbúa afmælið sitt þessa dagana. Búin að senda út tölvuprentuð afmælisboð. Komin dagskrá, hvað á að baka, hvað á að bjóða upp á um kvöldmatinn, hvaða leiki, diskó, Alex ætlar að gera heljar ratleik. Þannig að það er allt á fullu hér hjá okkur. Ég sendi Nínu eftir bókum á bókasafnið með leikjum og léttu gamani (líka fyrir mig til að hafa á Reunioninu). Ef einhver veit um ómissandi leik í svona stórgleði eins og árgangamót er þá endilega hafið samband við mig.
Ég er að vinna um þessa helgi, fæ þá afmælishelgina (Nína, 16.) í frí í staðinn!
Jæja nenni ekki meir í bili, bæbæ og góða helgi


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home