Grillboð og grasekkja
Við skelltum okkur í gær til Stadtlohn, að hitta Þórunni og Andrés, með börnum þeirra Ragnhildi, 8 ára og Ásthildi 5 ára. Þau buðu okkur í grill, það var rosa góður matur og gaman að hitta þau. Þau eru búin að búa hér í tvö og hálft ár en þaráður voru þau á Íslandi en hafa búið í Danmörku, hann í USA þannig að þau hafa komið víða við. Stelpurnar náðu allar svo vel saman, Nína og þeirra dætur að Nína vildi helst fá að gista hjá þeim. Það er svo krúttlegt þegar krakkar ná saman, fyrst allt í rólegheitum meðan þau eru að kynnast og svo bara eins og þau hafi alltaf verið vinir. Við eigum örugglega eftir að hittast oftar!!! Ég meina maður er 20 mín að keyra þetta þegar engin traffík er.
Það fyrsta sem Nína sagði þegar hún Þórunn spurði hana um skólann, var Ömurlegt, já það væri ömurlegt í skólanum, ég hálf skammaðist mín, sagði við Nínu á leiðinni heim í bílnum að maður ætti ekki að svara svona! Henni finnst sko ömurlegt að þurfa að vera með svona þunga skólatöksu á leiðinni í skólann og leiðinlegt að þurfa að vera alltaf að skipta um skólastofu eftir fögum og þá þarf hún vitanlega að taka þungu töskuna með sér.
Alex fór í nótt til Frankfurt að vinna við bílasýninguna http://www.iaa.de/2005/www/Deutsch/medien/news.php . Ég heyrði ekki einu sinni þegar hann fór. Það var svo heitt aftur í nótt, alveg ferlegt þegar maður fer að sofa í svona hita. Alex verður í burtu fram á mánudag í næstu viku þannig að ég og Nína verðum einar þann tíma. Nú eru þessar vinnutarnir að byrja hjá honum aftur þannig að við verðum oftar einar í nánustu framtíð.
Í dag ætlum við mæðgur að skella okkur í sund, aðeins að kæla okkur niður. Svo á Nína eftir að læra aðeins í líffræði.


3 Comments:
Það er ferlega leiðinlegt þegar að krökkum finnst ekki gaman í skólanum. :-/
Já maður hefur áhyggjur þegar það er svoleiðis. Vonandi jafnar þetta sig þegar hún venst nýja skólanum.
Þetta á örugglega eftir að lagast :), er það ekki Nína?
Þetta eru vissulega mikil viðbrigði og álag á krakkana til að byrja með.
Skrifa ummæli
<< Home