Danstími
Við hjónin fórum í annan samkvæmisdanstímann okkar í gær. Við stöndum okkur eins og hetjur í þessu. Náum skrefunum strax og snúningunum líka. Gaman að gera eitthvað svona, af hverju vorum við ekki búin að fara fyrr? Við erum komin með grundvallaratriðin í Wals, Blues, Disco Fox, Foxtrott, Marsch og Jive (Djæf). Svaka er þetta skemmtileg afþryejing. Ég mæli með þessu. Svo er búið að vera svo heitt hjá okkur undanfarið, þ.e. síðustu daga og í gær svitnaði ég þessi ósköp í danstímanum. En það var allt í lagi, það voru aðrir sem svitnuðu meira en ég, híhí.
Greiðslumat bráðum komið í hús, þá er bara að halda áfram....


4 Comments:
Frábært hjá ykkur, þið verðið með sýnikennslu þegar að þið komið á klakann næst;)
Bíddu, eruð þið í alvöru að spá í lóðarkaup???
Afþreying :) Flott hjá ykkur.. gangi ykkur vel og góða skemmtun!!
B.kv. Þóra sys
Já Heiðrún, Alex ætlar að byggja sjálfur.... Takk Þóra, meinti það...
Váá, æðislegt....þetta er þá alveg í alvöru....vona bara að þið fáið úthlutað;)
Skrifa ummæli
<< Home