Morgunkaffi með Þórunni
Var í gær hjá mér, hittumst rúmlega níu til að borða morgunmat saman. Ég var búin að leggja á borð úti á pallinum hjá okkur. Við sátum úti í blíðskapar veðri til að ganga tólf að borða og kjafta. Þórunn býr með manni sínum og tveimur börnum ca 30 mín frá okkur. Við verðum örugglega duglegar að hittast. Ekki er það verra að hún er algjör prjónakona, kannski maður læri eitthvað nýtilegt! Við ætlum að hittast á laugard. hjá þeim í grill, gaman gaman. Það verður gaman fyrir stelpurnar að hittast, þær eru á svipuðum aldri.
Ég er að fara á vinnufund á eftir og svo beint á kvöldvaktina. Fæ að hætta aðeins fyrr í dag því það er foreldrafundur í nýja skólanum hjá Nínu, þ.e. foreldrar barna í bekknum hennar Nínu. Um að gera að vera duglegur að mæta þangar. Við förum bæði.
Já greiðslumat komið til mömmu, þá er það næsta skref, að sækja um,,,,, hehehe


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home