þriðjudagur, september 06, 2005

Góða veðrið

Það er búið að spá 30 stiga hita í dag. Þann 6.sept. Geri aðrir betur. Ótrúlegt þetta veður þessa dagana.

Já ekki málið að taka smá sveiflu þegar við komum, maður þyrfti bara að kaupa sér dansdisk sem maður getur skellt á fóninn til að taka snúning.

Þetta með lóðina er mesta alvara.... Greiðslumatið var frekar tæpt en það er svona þegar konan er í hálfri vinnu og hjónin eiga enga fasteign... alltaf betra að eiga fasteign helduren peninga. Umsóknarfrestur rennur út 23.sept. Ég hvet auðvitað sem fæsta að sækja um svo við fáum lóð! Nei segi svona, maður verður bara að trúa á guð og lukkuna, sá kafli hlýtur bara að fara að koma í MÍNU lífi. Ein alveg á nippinu!

Heyrðu ég keypti svo nýjan síma þrátt fyrir allt. Það var víst síminn okkar sem var ónýtur, þetta fer að verða eins og með neverending story. Mamma þannig að ekki neitt vera að fara með símann til Önnu....

Ég er á kvöldvakt þessa viku. Við fórum í gær eftir vinnu hjónin saman niður í bæ í smá göngutúr, bara á hlýrabol og stuttbuxum, klukkan hálf níu.... bið að heilsa ykkur í bili

3 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Greiðslumatið er komið í hús (þitt og mitt), næst er að sækja um!!!! Ég tala við þig áður ;)

7:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er frú Sigríður líka að sækja um lóð???

1:22 e.h.  
Blogger Helga said...

Já nú fara allir að byggja

8:23 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters