Bara stutt kveðja fyrir svefninn
Á morgun er markaður. Allir þeir sem vilja kaupa dót eða föt eða annað tengt börnum er bent á að koma á markaðinn í Coesfeld. Vonandi verður ekki rigning!
Svo er ég að fara svol. spennandi annað kvöld. Þannig er það nefninlega að ein sem ég vinn með, Marina, ótrúlega fín stelpa kom með þá hugmynd að setja auglýsingu í blaðið sem kemur út einu sinni í viku og er ókeypis. Auglýsingin var eitthvað á þessa leið. Viljum koma á klúbbi, konur í kring um 25 ára, laugard.kvöld á fjögurra vikna fresti. Stammtisch heitir þetta á þýsku, klúbbur semsagt eða saumó á gamaldagsmáli..... OGGGG það voru fimm konur sem hringdu. Við Marina erum semsagt stofnendurnir og ætlum á morgun að kynnast þremur af þessum fimm. Þær sem hringdu voru flestar að nálgast fertugt (finnast þær bara vera um 25 sem er gott mál, ég á margar vinkonur hér úti sérstaklega sem eru mun eldri, sbr. Pirjo, og fleiri). Mér finnst þetta frábært hjá okkur, eða Marinu að gera þetta og ég er svaka spennt fyrir klúbb á morgun. Hún er þýsk hún Marina og er ekki héðan þannig að hún þekkir engan hér heldur þannig séð. Læt ykkur vita hvernig þetta fer og tek myndir af Nínu sölukonu.


2 Comments:
Góða skemmtun á morgun;)
ÉG slapp af markaðnum, gekk vel en rigning á köflum. Það er ein búin að bætast við í klúbb! Takk fyrir það Heiðrún.
Skrifa ummæli
<< Home