Nína
Hún Nína var frekar brúnaþung er hún kom heim úr skólanum í dag. Það var þannig að hún datt á hjólinu við ljós sem voru við mikla umferðargötu. Það var nefninlega einhver að koma á móti henni (á röngum hjólreiðarvegi, þ.e. í vitlausa átt, á móti réttri hjólaumferð) og hún fór til hliðar og við það þá missir hún jafnvægið og dettur á hjólinu. Hún meiðir sig á hægra hné en allt annað er óskaddað. Vitanlega getur hún ekki staðið ein á fætur því hjólið er einhvernvegin fyrir, töskurnar duttu úr körfunni sem hún er með á böglaberanum og allt í veseni. Nína sagði að gömul kona hefði bara gengið fram hjá henni, fullt af hjólreiðafólki hefði bara hjólað framhjá henni og meira segja fussað og sveiað yfir því að hún væri á miðjum hjólreiðarveginum!!! Sem betur fer kom vinkona hennar, hún Marja stuttu síðar og varð Nínu til hjálpar. Ef hún hefði ekki komið þá vissi Nína ekki hvað hún hefði gert. Svo segir hún hér við eldhúsborðið að borða hitaðar pulsur með brauði og remúlaði:,, Týpískt fyrir Þjóðverja!". Að láta mann liggja á götunni og hjálpa ekki. Þjóðverjar væru svo sjálfselskir..... þið verðið að sjá þessar kringumstæður fyrir ykkur, hún var alveg sveitt eftir að hafa hjólað og dottið, alveg í smá sjokki yfir því að hafa meitt sig og vitanlega sært stolt sitt útaf þessu öllu saman, svo kemur mamma og þá verður maður svo sorgmæddur og glaður að vera komin í öruggar hendur. Finnast svo allt ómögulegt í landinu þar sem maður býr því enginn hjálpar manni, ekki einu sinni gömul kona.....
Ég setti joð á, plástur og gaf henni kælipoka til að halda við. Hjálpaði allt strax. Svo spurði ég hvernig hún væri svona viss um að hún mundi fá hjálp á Íslandi? Hún vissi það bara.....
Nú mundi eflaust ein vinkona mín sem les bloggið og kommentar segja, þetta mundi líka gerast í Reykjavík, en við látum það liggja á milli hluta!
Nú er Nína sofnuð og henni líður betur í veika hnénu. Vona bara að hún geti hjólað í skólann á morgun. Svo kemur helgi og þá er Nína með markað niðrí bæ. Gaman gaman....


4 Comments:
Já ég skil að þú viljir fara ein en það væri frábært að hitta þig ef það er í leið fyrir mig....
sömuleiðis eigðu góðan dag :-)
kveðja
Helga
Já Helga ég veit alveg hvað þú átt við þegar þú segir að þetta gæti verið svona í Reykjavík. Ég hef nú samt ekki kynnst öðru hér en velvildinni einni. Ég t.d. þarf að fara í gegnum þrönga hurð með háan þröskuld alltaf þegar ég fer í vinnuna og úr henni. Það er auðveldara að fara inn heldur en út af því að hurðin skellist á mann. Svo oft þegar ég er á leiðinni út og er að rembast við þetta þá hjálpar mér alltaf einhver með því að halda hurðinni opinni ef einhver er nálægt. :)
Hins vegar finnst mér umræðan hér vera orðin ansi.. já þung.. Kannski er þetta bara ég en mér finnst það afar ólíklegt að í svona stóru og þróuðu landi eins og þýskalandi séu konur svona kúgaðar. Er í alvörunni hægt að staðhæfa svona um þýskar konur?? Ég bara spyr? Er ekki bara málið eins og þú sagðir að dagmömmugjöld væru svo há að konum finnst það ekki borga sig að senda þau á leikskóla??
Fyrir utan það að láta eiginmanninn taka allar ákvarðanir.. Ég held að margar konur kjósi að vera heimavinnandi og það er bara alls engin skömm í því. Það þýðir samt ekki finnst mér að karlinn taki allar ákvarðanir og að hún sé hræðilega kúguð!
En yfir í annað.. þá var það nú bara hérna í fyrra eða hittiðfyrra sem tvær stúlkur voru á línuskautum á Jaðarsbraut á Akranesi þegar önnur þeirra datt og handleggsbrotnaði. Hún lá þar víst í einhverja 6 tíma þar til vinkona hennar sótti móður hennar heim. En á meðan var fólk að horfa á þær út um gluggann og enginn virti þær viðlits?! Þetta var svo mikið áfall fyrir móðurina að hún skrifaði um þetta í Skessuhornið....
B.kv. Þóra systir þín
Þóra þetta með þýskar húsmæður er upplifun mín, hvorki neikvæð lýsing eða nokkuð þungt í sambandi við það. Mín skoðun og mínar nágrannakonur.
Umfjöllun mín á alls ekki að vera á neikvæðum nótum, ég vildi bara koma því að að Nína hefði meitt sig. ;-) Ekkert neikvætt við það, bara móðurhjartað sem vorkennir barni sínu :-) Og hennar túlkun á því sem gerðist, kannski var þetta allt öðruvísi og hún túlkar þetta bara á þennan hátt. Hver veit?
Jákvæðar kveðjur
Helga að fara á kvöldvakt
Já.. ég meinti þetta nú ekki þannig. Ég skil þig mjög vel og ég gleymdi einmitt að koma því að til Nínu með góðan bata :/
Já og ég skil það mjög vel og mér finnst það mjög krúttlegt að hún túlki þetta á þennan máta. :)
ÉG var bara aðallega að meina svona umræður hér í dag og síðasta færsla þín 'Frú Merkel kanslari Þýskalands' um þýskar konur og svoleiðis. Það svo sem gæti verið að meirihluti kvenna séu svona og karlarnir stjórni öllu. Þó svo að það sé mín skoðun í einlægni að það bara geti varla verið!
Þóra
Skrifa ummæli
<< Home