Islandfestival í Þýskalandi
Já það gengur á ýmsu í skipulagningu þessa dagana. Nú er maður búin að frétta af Íslandsdögum í Köln vikuna frá 18.nóv nk. Auðvitað á að fjölmenna á staðnum, boðið er upp á ýmiskonar menningarviðburði eins og bíó, Næsland, bókakynningar, ljósmyndasýningu, tískusýningu, tónlistarviðburði eins og Mugison og margt, margt fleira. Við í saumaklúbbnum ætlum að fjölmenna og sýna lit. Það er bara spurning hvaða dag á að velja og hvað á að velja að skoða því allt getur maður ekki séð það er alveg á tæru. En ef þið hafið áhuga þá eruð þið hjartanlega velkomin að koma með á þessa frábæru sýningu http://www.islandfestival.de/index.php .
Nína kom heim í gær, var mjög ánægð með ferðina. Alveg búin með alla orku, borðaði kvöldmat með Alex, ég var á kvöldvakt og fór svo beint að sofa. Sofnaði eins og steinn og ég sem var svo spennt að hitta hana, nei hún var gjörsamlega rotuð í rúminu sínu með sín hestarúmföt utan um sængina sína. Í morgun þegar hún vaknaði ætlaði hún ekki að geta opnað augun. Hún var ennþá svoooo þreytt og búin á því að hún hefði eflaust getað sofað fram á hádegi. Kannski hún leggi sig þá með mömmu sinni eftir hádegismatinn. Í kvöld er svo slátur, ég heppin á kvöldvakt! Hún er svo spennt að fá slátur í matinn en Mamma og Þórður komu með slátur sem mamma hans Þórðar gaf okkur, kærar þakkir fyrir það.
Við ætluðum að reyna að fara á Holliday on ice um helgina en ég held að við náum því ekki, ætla aðeins að bíða eftir vaktaplaninu fyrir helgina og svo hringja í Ingu Mörthu. En þetta er svona skautasýning, örugglega rosalega gaman að horfa á það. En það koma önnur skipti eftir þetta skipti.
Bið ykkur vel að lifa og við verðum í bandi,
ykkar Helga


1 Comments:
Mmmmm ég elska slátur;)
En það verður að láta hann Sven vita af þessu festivali, hann myndi pottþétt fara á einhverja tónleika
Skrifa ummæli
<< Home