þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Lífið er yndislegt

Um seinustu helgi gerðum við okkur glaðan dag og fórum á skautasýningu á laugardeginum með Ingu Mörthu og hennar ektamanni Werner. Þetta var rosalega gaman. Við höfum aldrei farið á svona sýningu og það er alveg frábært að sjá svona stóran hóp af fólki dansa saman á skautum. Mottóið var Romanze.

Á sunnudeginum var svo gæs með hakkfyllingu í matinn. Alex gerði þetta í fyrsta sinn því ég var að vinna. Hann fór meistaralega með þetta verkefni, það þarf svol. að sauma og hann er ekki þekktur fyrir saumahæfileika en þetta var fínt hjá honum. Gæsin bragðaðist svo alveg meistaralega, þetta er uppskrift frá mömmu hans sem ég hef gert nokkru sinnum og heppnast yfirleitt vel. Ég komst í smá jólaskap við það að borða svona svakalega fínan mat, um hádegi og rauðvín og alles með. Vantaði bara toblerone ís og Sherrýfrómas.

Á morgun er foreldraviðtal, ég er spennt að vita hvað kemur útúr því. Hún stendur sig vel að læra en ég hef smá áhyggjur af henni varðandi félaga í bekknum. Það kemur sjálfsagt en hún á einn vin en nær ekki að tengjast stelpunum.

Svo erum við að fá heimsókn á fimmtudaginn, eins gott að veðrið skáni aðeins. Búið að rigna í allan dag, það er ekki gaman. Gunna hjúkka er að koma, flýgur til Amsterdam og ætlar að vera í tvær nætur áður en hún fer og hittir sinn ólofaða kærasta og verður með honum í nokkra daga í Hollandi.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl krúttið mitt
Gæturðu ekki meilað á mig þessa gæsa-uppskrift, var að spá í að elda eitt slíkt kvikindi. Hvernig er það annars á að fara heim um jólin eða?
Og til hamingju með lóðina:)
Kv. Krissý

2:32 e.h.  
Blogger Helga said...

Já takk Krissý mín, kannski maður opinberi bara uppskriftina frá tengdamóður sinni á netinu???

7:49 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mmmmmm....maður fær bara vatn í munninn.......

1:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters