Slydda, saumó og heilbrigði
Haldiði að það sé ekki slydda í dag. Ég sem var viss um að það væri að fara að vora. Nei ég verð víst aðeins að bíða lengur eftir því. Um helgina er spáð sól og 5 stiga hita þannig að það passar að bróðir Alex og familý komi þá helgi.
Nína er að hressast. Hún fór í skólann á mánudaginn þrátt fyrir örfáar kommur, hún var alveg orðin þokkalega hress á sunnudaginn, farin að leika sér og orðin eðlileg að okkar mati. Þetta er alveg ferlegt þegar maður verður svona veikur og þarf að taka sýklalyf. Hún er enn að taka eitthvað slímlosandi og nefdropa og uppbyggjandi náttúrusaft. Allt gert til að ná heilbrigði. Í gær flatmagaði hún svo hér í stofunni allan daginn og var að horfa á sjónvarpið, poppaði örbylgjupopp og hafði það gott. Aðeins að byggja sig upp fyrir vikuna. Í dag er svo skólaleikritsæfing. Það var ákveðið í seinasta tíma að leika ætti The Wave, á þýsku Die Welle. Krakkarnir kusu sjálfir um það. Mér fannst bara einkennilegt að það væri valið leikrit sem fjallar um ungmenni á nasistatímanum. Það er eins og þeir fái ekki nóg af því að vera að velta sér upp úr stríðsmenningu sinni ef menningu ætti að kalla. Mér finnst löngu nóg komið og skil þetta hreinlega ekki, af hverju er ekki hægt að velja leikrit sem fjalla frekar um lífskreppur almennt eða mikilvægi barneigna, gildi þess að hafa atvinnu eða bara um hamingju og gleði? Ég er nú stundum svo einföld og langar ekki að vera að velta mér of mikið upp úr hlutum sem veita mér enga ánægju en það er kannski bara ekki gáfulegt í þýsku umhverfi, þori ekki að segja um það.
Um helgina var svo saumó hjá Svölu í Eifel, það er svo yndislega fallegt þar. Ég fór með Ingu Björk og syni hennar honum Júlían sem er alveg búin að jafna sig eftir ófarir fyrr í mánuðinum. Mættar voru: Bjarnhildur, Inga Martha, Inga Björk, Ég, Svala (að sjálfsögðu), Alley, Manfred og Ulli. Svo kom dóttir Svölu, Susanna stutt niður en hún býr á efri hæð hússins. Það var mikið rætt og rabbað, hlegið dátt og talað hátt. Það er alltaf gaman þegar hópurinn hittist. Ákveðið var að halda sumarhátíðina fyrstu helgina í júní, næsta saumó heldur Agnes í Hollandi og það verður sennilega á afmælisdegi Bjarnhildar 19.mars.
Læt þetta nægja í bili, ég skrifa alltaf of langt.......


4 Comments:
þú skrifar aldrei of langt Helga mín, gott að Nína er að jafna sig.
kv Systa
Vá, svolítið "heví" leikrit fyrir 11 ára krakka.....við lásum bókina í ensku í menntaskólanum í Danmörku.....heldur þú að krakkarnir fatti alveg söguna?
Ég þekki ekki leikritið en það var leikritsæfing í gær og það eiga bara eldri nemendur skólans að taka þátt í þessu leikriti, þ.e. 8.-13. bekkur, hinir yngri verða í öðru leikriti.
Ég er fegin, ég segi það satt.
Já, ég skil það eiginlega vel;)
Skrifa ummæli
<< Home