mánudagur, apríl 03, 2006

Grilltímabilið byrjað

Við hélum grilltímabilsopnunina hátíðlega á laugardagskvöld eftir hálfmaraþon hjá Alex. Hann stóðst það með prýði, ekki spyr maður að því. Reyndar hissa sjálfur að hann væri aðeins eftir sig! Ekki orð um það meir. Ég er mjög stolt af þessum íþróttaáhuga hjá honum og finnst gaman af því að hann keppi í hinum ýmsu keppnum, hvort sem er í hlaupi eða þríþraut. Eflaust margt verra til en þetta! Vissulega tímafrekt áhugamál en það held ég að sé nú í lagi. Ég á kannski eftir að líta þetta öðrum augum þegar ég er sjálf orðin útivinnandi aftur, hvenær sem það svo verður og með stórt heimili og svona en það er nú ekki alveg á morgun sem það gerist.

Ég var með svo mikið grillkjötsbragð í munninum að ég varð að kaupa kjöt á grillið og grilla á laugardaginn. Fékk mér meira segja áfengislausan bjór með og var í svaka fíling við að borða þennan líka yndislega mat. Svínakjöt í mareneringu, kartöflu, salat og hvítlauksbrauð, mmm I love It. Það eru margir sem grilla líka um vetrartímann, ég hugsa að mamma mín teljist til þeirra og það er bara frábært en við höfum ekki gert það, amk ekki í vetur, þrátt fyrir gasgrill. Auðvitað ekkert mál að kveikja á grillinu og skella einhverju á það en það er einhver innri hemill á mér! Skrýtið ekki satt. En núna er sumargrilltíminn amk hafinn hjá okkur, bara sumarið lætur aðeins bíða eftir sér, það er búið að rigna sl. daga af og til meira og minna þannig að það er ekki beint sumarstemming hjá manni þrátt fyrir hækkandi hitastig.

Enn bætast við óléttur í hjúkkuhópnum mínum, það er nú meira hvað við erum duglegar að fjölga mannkyninu. Við erum tólf í hóp og það er von á amk 5 börnum á þessu ári og væru fleiri með ef gætu! Geri aðrir betur....

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Það er snjókoma hjá okkur í dag þannig að það verður nú ekki mikið grillað!!! ;)

5:37 e.h.  
Blogger Helga said...

Það kemur dagur eftir þennan dag. Það er aldeilis að verða skíðafært á öllu Íslandi núna ;-)

6:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég grilla allt árið um kring, nota bara regnhlíf ef rignir :)
kv Systa

7:25 e.h.  
Blogger Sigga said...

Við grillum líka allt árið...ef það er mjög kalt þá kveikjum við bara á pallahitaranum á meðan við erum úti að grilla.
Maður lætur hvorki snjó, rigningu né frost stoppa sig í því...verst ef mar þarf að grafa grillið upp úr snjóskafli. En það hefur nú ekki gerst í vetur held ég.

12:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fyrir utan það þá er grillmatur mjög hollur, ekki steiktur í fitu eða slíkt. Við borðum grillmat....
Kveðja
Helga

7:54 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég kíkti á úrslitin hjá Alex. Fínn tími í 21km 1:52. Við erum á svipuðum tíma.

Ég verð að fara kaupa nýtt grill og grilla!!!

11:37 f.h.  
Blogger Helga said...

Það er um að gera að fá sér gott grill, kannski gefast þá fleiri stundir til að grilla. Já hann var mjög ánægður með tímann, var búinn að reikna út að hann væri sennilega 1:55 en var betri en það svo það er mjög fínt hjá honum. Ég mundi ná þessu á göngutempói og væri glöð að komast í mark! En það er nú annar handleggur. Æfa svo!!!

2:03 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters