Hálfmaraþon
Hann Alex er að fara að hlaupa hálfmaraþon á eftir í Duisburg. Hann kom heim frá törn í Leipzig á fimmtud. og það er æðislegt að hafa hann heima, ég sef betur, sofna fyrir framan sjónvarpið og er með öllu móti mun afslappaðri. Hann er að fara í þetta verkefni með félögunum úr þríþrautaríþróttafélaginu sem hann er í. Svakalega spennandi. Við Nína förum ekki með til að hvetja hann, þeir fara saman á einum bíl og það er víst eitthvað vesen að finna bílastæði og svo eru svo rosalega margir að taka þátt í þessu að Alex telur það fyrir bestu að við séum heima. Við krossleggjum fingur fyrir hann og bíðum spenntar eftir því þegar hann kemur heim í kvöld. Hann er mjög afslappaður yfir þessu enda vel æfður og undirbúinn.
Ég fór aðeins niður í bæ í gær og var að skoða í verslunum. STundum er ég alveg í svakalegu skapi til að skoða í búðir. Það er svo margt fallegt til af barnafötum, ég verð alveg kaupóð. En ég held í mig og kaupi ekki. Ennþá líka frekar snemmt. Heilsan er góð og það er töluvert um spörk og snúninga á 26 vikna dúllunni okkar.
Eigið þið góða helgi og innilegar hamingjuóskir með Halla og Guðmundu í gær Hildur og til hamingju með afmælið í dag Gunnur.
Bestu kveðjur
Helga


4 Comments:
Vonandi gengur þetta vel hjá Alex, hann er rosa duglegur.
Hlakka mikið til að hitta ykkur um páskana og skoða kúluna ykkar :)
kv Systa
Gangi þér vel Alex minn, verst að þú verður ekki á landinu til að hlaupa með Kristleifi í Akraneshlaupinu;)
Gott að þér líður vel Helga mín, það bara yndislegt að finna spörk er það ekki? ;)
Góða skemmtun í kvöld Inga mín, það verður örugglega svaka stuð hjá þér. Gott hjá vinkonu þinni að drífa sig. Það væri líka erfitt fyrir mig að taka þátt í svona en mér finnst æði þegar aðrir gera það.
Hvenær er Akraneshlaupið Heiðrún, já Alex væri sko meira en til í að taka þátt í einhverju á meðan við erum á Íslandi. Hann er svo keppnisóður.
Bestu kveðjur
Helga
Takk Helga mín!
Þú mannst að þú/þið eigið inni hjá mér vöfflukaffi :-)
Verðið þið í Tyskland í sumar, er búin að skoða leiðina frá Århus til Coesfeld. Alls ekki svo langt....
Kveðjur í kotið, Gunnur
Skrifa ummæli
<< Home