þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Kveðjumatur

Það er stundum skrýtið hvað það getur verið erfitt að kveðja. Kveðja eitthvað og þar af leiðandi byrja eitthvað annað en hefur verið. Hvort sem það er heimili, kaupstaður, vinir eða ættingjar eða bara einhver hlutur. Ég hef ansi oft kvatt mína ástvini á minni ævi, það er útaf því að við eigum fjölskyldu í tveimur löndum og langt framanaf voru tár og söknuður mjög sýnileg. Ennþá í dag kemur það að maður felli tár við kveðjustund eða sé alveg miður sín af söknuði. Enda ekkert asnalegt við það. Það sýnir bara hve sterkar tilfinningar maður hefur gagnvart viðkomandi og að manni hafi fundist tíminn saman verðmætur. Það er nú eins og það er með tilfinningar, maður er nú ekki alltaf að bera þær á borð fyrir hvern sem er og hvenær sem er. Sumir eru gjarnir á að vera fljótari að segja tilfinningar sínar þegar það er í formi gagnrýni eða skamma en aðrir eru mjög duglegir að telja það jákvæða upp og auka sjálfsálitið hjá manni. En hvort sem er, þá eiga allir rétt á því að tala um tilfinningar sínar og segja það sem þeim finnst. Það getur stundum verið erfitt á kveðjustund en það er þá bara yndislegt þegar maður hittist aftur.

Það er slík kveðjustund hjá mömmu í kvöld. Systkini mín fara í mat til hennar til að kveðja hana og Þórð, en þau eru á leið til Köben þar sem áætlað er að dvelja í ár á meðan mamma er í námi í DPU. Þau eru komin með íbúð í miðri Kaupmannahöfn og ætla að taka ferjuna frá Seyðisfirði og vera með bílinn hjá sér þannig að þau geti m.a. komið til okkar í heimsókn. Vonandi verður voða gaman hjá ykkur í kvöld elsku fjölskylda og ég bíð spennt að mamma og Þórður komi til okkar í ágúst til að hitta okkur og vissulega Balthasar nýjasta fjölskyldumeðliminn.

3 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Þetta er frábær hugleiðing hjá þér Helga mín :)

Þau (Þóra Óli og Karen) eru nýfarin í bæinn. Amma Lilla fór all nokkru fyrr og svo komu Valli og Dóra áðan.
Takk fyrir kveðjuna á Akranesvefnum. Sjáumst fljótlega, bestu kveðjur héðan.

2:54 f.h.  
Blogger Helga said...

Það hefur örugglega verið þrælgaman hjá ykkur eins og vanalega. Hlakka til að sjá ykkur.

1:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það var mjög gaman, við mamma, Karen og Þórður ákváðum að klára lagerinn af víni sem til var og það rann allt saman ljúflega niður :)

En það er alveg satt hjá þér Helga svona kveðjustundir geta oft verið svolítið sorglegar. En það fer nú að líða að því að fjölskyldan sameinist öll á landinu þar sem þið eruð að fara að flytja heim og mamma og Þórður verða nú bara í eitt ár úti. (Allavega samkvæmt planinu)

Jæja, ég bið æðislega að heilsa í bili. Sjáumst, Þóra

3:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters