Bara rólegheit
Það væri nú lýgi ef ég segði að ég hefði ekkert að gera. Það er alltaf gott að koma heim úr fríi en því fylgir alltaf ákveðin vinna sem ég er nú búin að vera góð í að dreifa ansi mikið niður á alla daga vikunnar. Enda ekkert sem er að pressa á mig, engin ferð þessa helgina amk. Ekki nema maður fái gesti frá Danmörku, Mamma það er laust um helgina!!
Alex kemur á morgun og svo er alsherjar skemmtun í íþróttafélaginu hans á laugardaginn, mér er meira segja boðið, ég verð bara að fá að mæta aðeins seint, líka klúbbur ákkúrat á sama degi, talandi um rólegheit.
Nína hetja var að passa ein í gærkvöldi, ég þurfti að fara á námskeið og Alex ekki heima þannig að pilturinn var settur í rúmið um hálf átta og svaf meðdesamme, alveg merkilegt! En þetta er alveg yndislegt, ég segi nú bara er á meðan er ekki satt. En hann er duglegur að drekka á nóttunni þannig að þetta með að sofa heila nótt, var bara tvisvar eða eitthvað fyrir ansi mörgum vikum síðan.... Nína ætlar að fara á barnapíunámskeið sem verður haldið hér í bænum. Þeir sem taka þátt fá viðurkenningarskjal og þar sem námskeiðið er haldið er barnapíumiðlun, ég er nú ekkert á því að hún fari að passa fyrir aðra en okkur, þá gæti maður misst þessa fínu barnapössun sem við höfum og erum mjög ánægð með. Hún sem aldrei var neitt fyrir börn, bara dýr, dýr, dýr. Það getur maður ekki ímyndað sér þegar maður sér hana með bróður sinn í dag, eins og hún hafi aldrei gert annað en að passa.
Í gær var frekar stremið hjá mér því ég fór óvart í tvo leikfimistíma, einn fyrir hádegi og einn um kvöldið. Held að þetta hafi verið aðeins of mikið fyrir mjólkurbúið þannig að ég er búin að hafa Balthasar ansi mikið við brjóstið í dag. Vonandi næ ég þessu upp fyrr en síðar. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir þessu en það hefur verið of mikið fyrir mig annars mjög rólega manneskjuna að fara í tvo tíma á sama deginum. Þetta hitti bara svo illa á með að eitt námskeiðið er að klárast og áður en það klárast byrjar næsta námskeið. Kannski allt með ráðum gert, hver veit. Já ég ætla að fara að taka mig á, komnir þrír og hálfur mánuður síðan ég átti barnið mitt og ekkert gerist í magamálunum af sjálfum sér á þessum bæ. Þýðir ekkert annað en að taka þetta föstum tökum. Ég er nú ekki að fara út í neina vitleysu, enda aldrei verið 30-60-90 og hef ekki áhuga á því, allt of mikil óþægindi sem fylgja því, er það ekki annars???? Neinei bara svona hollt aðhald, ég er hvort eð er ekki manneskjan í eitthvað virkilegt átak eins og er.
Læt þetta duga í bili, lifið heil kæru vinir nær og fjær


7 Comments:
Hehe!
En á það ekki að vera 90 60 90 svo að maður sé nú með almennilegan barm ;þ
En ég held að þetta sé í góðu á meðan maður er ekki 90 90 90 hahaha
Ég er búin að bíða í 2 ár eftir að maginn minn verði eins og hann var en ekkert gerist... þetta gerist víst ekki af sjálfu sér :)
Karen réttlega athugað, það er sennilega frekar lítið að vera með 30 í rassumfang ekki satt!
Systa við gefumst ekki upp....
Ég vildi að þú værir hérna nálægt mér svo að ég gæti farið með þér í magaátak.....ég veit vel að það myndi gera mikið gagn að gera magaæfingar kvölds og morgna en samt geri ég ekki neitt..:o/
Núna getur Nína farið að rukka ykkur ærlega fyrir passið;o) Enda finnst mér það bara allt í lagi þar sem að hún er svo dugleg!!!;o)
Pilates er alveg frábær leið til að fá mallann í gott form og það er hægt að fá DVD diska þar sem kennt er pilates fyrir mömmur og jafnvel hægt að hafa litlu börnin með í æfingunum. Til dæmis þetta :)
http://www.amazon.com/Jennifer-Giannis-Fusion-Pilates-Exercise/dp/B000AOG794
En fyndið, ég er einmitt búin að fá mér Pilates dvd og ætla að byrja í DAG á því, bara basic en ef maður tekur rass, læri, maga, handleggi þá er það klukkutími, ætla bara að byrja á tveimur og tek kannski allt ef drengurinn er til friðs á meðan. En hann er eiginlega ekki vandamálið, hhmmm!!!
Heiðrún þú færð bara einhverja nágrannakonuna til að taka hraðgöngu með þér eins og þú varst farin að vera dugleg með Elvu ekki satt... við tökum þetta saman þegar við erum báðar komnar á Skagann.
Gott hjá þér Helga :) Ég hef aldrei heyrt um þetta Pilates áður. Ætti maður að fá sér Pilates?
Hafið það gott um helgina elskurnar. Ég heyrði að Alex kom heim frá París þegar í var að tala við Nínu í gær.
Skrifa ummæli
<< Home