Fríið búið
Þetta var algjörlega æðislegur tími. Spurning hvort maður flytji bara til Danmerkur næst! Nei smá grín hér....
Ég þakka fyrir frábærar mótttökur í Lystrup, til vina okkar frá Akranesi, skólanum sem Snorri og Margrét ganga í og öllum þeim sem tóku þátt í að gera dvöl okkar svona skemmtilega eins og raun bar vitni. Við fengum að taka þátt í Skagamati og spilapartý á heimili Heiðrúnar og fjölsk. og það var bara yndislegt enda allt saman svo gott fólk og skemmtilegt. Takk fyrir, við endurtökum leikinn hér á heimili okkar þann.... n.k...... spurning um að ath með langferðabíl eins og Kristleifur sagði? Kannski að maður fari að fægja strengina á gítarnum og æfa sig aðeins!
Eftir allt of fáa en skemmtilega daga í nágrenni Aarhus fórum við til Vellerup sem er í ca 20 mín fjarlægð vestur frá Roskilde og áttum þar yndislega daga í faðmi fjölskyldunnar, Atli Þór var mættur á svæðið sem leynigestur og það var frábært. Ekki að spyrja að því að Balthasar var knúsaður fram og tilbage enda mikið sem á eftir að vinna upp! Nína var alsæl með sína vini, en það voru all margir hestar í nágreninu og hún spratt upp á morgnana og var hjá hestunum í nokkra tíma á dag að gefa þeim hlýju og næringu!
Í dag komum við svo heim, eftir langa og stranga keyrslu, það gekk rosalega vel fyrripart leiðar en þegar eftir voru um 250 km í Þýskalandi þá sagði drengurinn stopp, hingað og ekki kílómeter lengra!!! En við komumst heil á húfi heim eftir tíu klst. bílferð! TAkk 'OPel
Alex þarf svo því miður að fara á morgun til Parísar þannig að fyrsta þvottavél er komin af stað, hann kemur svo heim á föstud. þannig að við verðum bara þrjú að aðlagast eftir frí!
Ég bið að heilsa í bili og ætla aðeins að fara í sófann, þessa elsku! Góða helgi...


5 Comments:
Takk sömuleiðis fyrir frábæra daga, það var æðislegt að fá ykkur í heimsókn.....þá er bara að fara að plana Þýskalandsferð;o)
Frekar fúlt að Alex þurfi að fara strax á morgun...manni finnst eiginlega nauðsynlegt að hvíla sig aðeins á sínu eigin heimili eftir svona frí...
Já við verðum að vera dugleg að hittast á meðan það er ökufært á milli okkar Heiðrún.
Já var að keyra hann í vinnuna, kemur á föstud. aftur, þá er bara að snúa sér að heimili og börnum :-)
Kveðja Helga
Takk fyrir samveruna, þetta var alveg meiriháttar hjá okkur.
Bestu kveðjur héðan.
Þetta hefur aldeilis verið skemmtilegt! Rosa gaman að sjá nýju myndirnar og algert æði myndin af systkinunum sofandi :)
Takk kærlega fyrir mig. Þetta var yndislegt :) Og gaman að sjá Balthasar. Hann er þvílíkur drauma strákur hann er svo góður!
Guð, eru myndir! Ég ætla að finna þær ;)
B.kv. Þóra
Skrifa ummæli
<< Home