föstudagur, október 06, 2006

Í heimsókn í Lystrup

Já kæru félagar, það er rosa skrýtið að vera komin hingað í heimsókn hingað þar sem Heiðrún, Kristleifur og fjölskylda búa, Gunnar Sturla, Christel og fjölskylda og Gunnur, Guðmundur og fjölskylda búa. Mjög gaman að kíkja í göngutúr og banka uppá hjá æskufélögum sínum, sem maður hefur ekki hitt í áraraðir í góðu tómi. Í kvöld er svo stefnan að hittast og borða saman og rabba, ég hlakka mikið til. Það sem gleður mig sérlega er hve afslappað andrúmsloft er á heimili Heiðrúnar og hve Nína smellpassar einhvern veginn inn í vinskap Snorra og Margrétar Sögu. Balthasar hagar sér líka vel og lítið annað hægt um hann að segja en að hann er duglegur að borða, sofa og skila restinni í bleyjuna.

Leiðin heimanaðfrá okkur tók í það heila um 9 klukkutíma, við vorum í mestri traffíkinni heimanaðfrá okkur og fram hjá Hamborg, stöppuð traffík og mikið um viðgerðasvæði á hraðbrautinni. Hreinn keyrslutími var um 6 - 6 1/2 tími. Litli drengurinn var góður þar til að um hálftími var að Lystrup, þá fékk hann svo mikið hungurskast að við urðum að stoppa í nánast hálftíma til að gefa honum að borða.

Í dag ætlum við að fara til Arhusa og skoða gamla bæinn og höfnina ásamt því sem við ætlum að skoða í bænum. Nína fór með Snorra og Margréti í skólann í dag. Það verður gaman að sjá hvað þau segja við því.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hefði ekkert á móti því að bætast í hópinn;) Skemmtið ykkur nú vel í fríinu! (Þú mátt senda mér heimilisfangið ykkar í Coesfeld í tölvupósti við tækifæri)

10:29 e.h.  
Blogger Bippi said...

Takk æðislega fyrir heimsóknina Helga mín. Það er frábært að fá fólk í heimsókn sem er svona afslappað og heimilislegt;o)

Góða skemmtun í fríinu með fjölskyldunni!!!

2:48 e.h.  
Blogger Christel said...

Það var yndislegt að hitta ykkur, þið eruð frábær!!!

Margrét Saga er farinn að sakna Nínu:(

2:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters