Úti er ævintýr
Það er nú meira sem maður les í fréttunum um þetta veður á Íslandi! Ég sendi ykkur öllum kraft til að komast ferða ykkur elskurnar sem eruð á Fróni. Í staðinn sit ég hér í rökum kulda og kemst mínar leiðir.
Það fer nú lítið fyrir jólafiðringi í mér í ár. Skil ekki alveg í þessu, vanalega er ég nú svo spennt yfir því að setja ljósaseríuna í stofuna og skreyta. En því er ekki farið svo í ár. Kannski of mikið barnastúss á mér og bara svo gaman að því. Mér sýnist líka stefna í að ég geri ekki jólakortin í ár, heldur kaupi þau í (vonandi fer ég rétt með) fyrsta sinn síðan Nína fæddist!!! Fyrstu jólakortin sem ég gerði voru rauð kort með laufblaði sem ég týndi úti og plastlímfilma yfir :-) leit ekkert sérlega snyrtilega út en var náttúra!!!
Ég sit núna ein við tölvuna og er að blogga, ætlaði snemma í bólið og er alveg rétt ófarin í þessum skrifuðum orðum en vildi bara láta ykkur vita að við erum byrjuð að gefa Balthasar graut. Það fer kannski hálf matskeið ofan í hann en honum finnst þetta rosalega spennandi, opnar munninn en það tollir lítið uppí honum, kemur mest út úr honum þegar hann er að reyna að sjúga skeiðina, þessi dúlla.


3 Comments:
Litla Krúttið að sjúga skeiðina!!!
Ég gerði jólakort sjálf í fyrsta sinn í fyrra og fannst það rosa gaman, vonandi hef ég tíma til að endurtaka það í ár :)
Já það tekur langan tíma að búa til jólakort og það er allt í lagi að sleppa því svona einu sinni.
Það er líka allt í lagi að sleppa því að skreyta þar til fyrsta sunnudag í aðventu, er hann 3. des eða?
Ég hef ekki getað staðist freistinguna og hef keypt mér nokkra litla julenisser :) Maður getur alltaf á sig blómum bætt, ekki satt?
He, he, þetta er akkúrat öfugt hjá mér.....
.....í fyrra var ég ekki alveg í gírnum en núna er ég álveg komin í gírinn og hlakka til að eyða aðventunni hérna í Danmörku;o)
Skrifa ummæli
<< Home