föstudagur, nóvember 17, 2006

Stóra stelpan mín

er búin að hafa ansi mikið að gera í dag.
Hún fór í grunnskólann sinn í kennslustund til fyrrverandi umsjónarkennarans síns og var í bekknum hjá henni í tvær kennslustundir. Hún kynnti sig og las heila bók fyrir nemendur í fjórða bekk og svo voru samræður. Þetta er á hverju ári, lestrartími þar sem eldri nemendur sem hafa áhuga fara í yngri bekki eða í leikskóla og lesa fyrir börnin úr bók eða heila bók. Nína gerði þetta í fyrra líka og var svona líka lukkuleg með sjálfa sig að hún ákvað að gera þetta aftur í ár.

Svo kom hún heim eftir skóla sem var til kl.14 í dag og borðaði og lærði, þetta daglega prógramm, lék aðeins við bróður sinn og passaði hann aðeins fyrir mig á meðan ég skrapp út í búð.

Síðan var farið út í það að taka sig til fyrir kvöldið....
Bíóferð (í bíó kl.20!) með þremur vinkonum úr bekknum, úlala... bara hárið gert nýtt (þvegið, blásið og greitt), settur varasalvi með jarðaberjabragði á varirnar, tekið með sér veski fyrir seðlaveskið, hringt í vinkonurnar, beðið...beðið eftir að tíminn líði.

Vá hvað þetta er gaman, Alex er að sækja þær núna og keyra stelpunum heim, ég er spennt að heyra hvernig var í kvöldbíói ein með vinkonunum. Ég er nú svo ströng og gamaldags að ég hélt að 11 ára "börn" mættu ekki fara í kvöldbíó....

5 Comments:

Blogger Silja said...

Iss Helga mín, þú ert ekkert gamaldags, þú ert bara smeyk um að þessi "börn" fari að vitleysast eitthvað. Ættir að vita það sjálf... ;)

Held að hún Nína þín hljóti að vera ansi klár og þorin fyrst hún les í tvo tíma fyrir yngri nema.

9:13 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já, gaman að heyra hvað Nína er dugleg stelpa.

Ég hefði nú haldið að börnin þurfi að vera 12 ára til að fá að fara í kvöldbíó!! Hvað segirðu, gloss und alles.
Þú ert greinilega farin að slaka á eða hvað? :)

7:05 e.h.  
Blogger Helga said...

Held að hún sé nógu þroskuð til að fara í kvöldbíó, Alex fór með þeim inn en skildi við þær þegar þær voru að fara í gegn að láta rífa af miðanum og sótti þær eftir bíó og keyrði allar heim að dyrum, svaka góð þjónusta. Nínu fannst rosalega gaman en var alveg búin þegar hún kom heim. Hún var hneyksluð yfir því hvað það væri dýrt í bíó, kostaði 7 Evrur, þannig að það fóru 10 Evrur af vasapeningi mánaðarins í þessa skemmtun, hún fær 12 á mánuði!

Veit ekki hvort ég er farin að slaka á, var ekki róleg fyrr en hún var komin hingað heim, ítrekaði að tala ekki við ókunnuga og fara ekki í bíl til neins....

12:10 f.h.  
Blogger Bippi said...

Já, þau stækka og þroskast þessi börn....þau verða flutt að heiman áður en maður veit af.....

Það er nú samt svolítið gaman að fylgjast með þessum breytingum hjá þeim;o)

Skrítið að færslan birtist fyrst hjá mér í dag en ég kíkti samt á síðuna hjá þér í gær...

8:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það er sko satt, þau eiga örugglega eftir að ná okkur í þroska áður en við vitum af, hehe...

En það er einmitt svo mikið að gerast finnst mér núna, strákar ekki lengur ömó heldur stundum svolítð sætir... og svo að hafa sig aðeins til þrátt fyrir að vera meiri sveitótýpa... ss. dýr og útivera og ekkert að spá í fötum eða svol.

Sendum styrk til ÍSLANDS

11:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters