þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Grautur




við erum byrjuð að gefa graut, hann braggast vel strákurinn, bara svo þyrstur á nóttunni, ætla að reyna að fá hann til að borða graut á kvöldin svo að mamma gamla nái betri næturhvíld. Hann er núna orðinn tæp 7,5 kg fjögurra og hálfs mánaða. Það telst nú bara gott. Við erum búin að gefa honum ca 4 sinnum og það sem fer ofan í þessa krús er nú kannski tæp matskeið en honum finnst þetta algjört sport og galopnar munninn í hvert sinn sem skeiðin kemur. Reyndar þarf ekki skeið til því hann galopnar munninn þegar eitthvað nálgast munninn, ætli það sé ekki að styttast í tönnslur, svoleiðis lekur slefan hjá honum :-)

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Pattaralegur litli gormurinn:) Það kemur að því að það endar meira í maganum en á smekknum (andlitinu, stólnum, fötunum, gólfinu...). Verði þér bara að góðu Balthasar minn, vonandi geturðu sofið aðeins lengur með mettan maga:)

11:22 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já, þetta lærist fljótlega þ.e.a.s. að borða úr skeið.

Fínar nýju myndirnar á barnalandi:)

11:53 f.h.  
Blogger Helga said...

Já það er alltaf að verða meira og meira sem fer ofan í hann, það er algjört met hvað hann opnar munninn á móti skeiðinni, eins og hann fái ekkert að borða þetta skinn. Vorum í vigtun í dag, 7,6 kg, alltaf að þyngjast þessi elska, 200 gr á viku það er nú bara hið besta mál.

10:52 e.h.  
Blogger Bippi said...

Hann er alveg ótrúlega flottur strákur hann Balthasar!!!

11:34 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters