Má maður
bjóða ykkur í vöflur? Ég hef bara aldrei smakkað jafn góðar vöflur og hjá henni Nínu minni í dag. Hún var að prufa nýja uppskrift úr bakstursbók sem ég fékk í jólagjöf sem er frá Dr.Oetker en hann er algjör meistari í uppskriftagerð hvort sem er fyrir bakstur eða eldamennsku. Það verður sko ekki af henni Nínu skafið enda mikið að sniglast í eldhúsinu ef það er eitthvað skemmtilegt um að vera þar.


6 Comments:
Mmmm.... girnilegar vöfflur!!! Ég panta að fá Nínuvöfflur þegar að ég kem í heimsókn;o)
Rosalega myndarleg :)
Og ekkert smá girnó vöfflur hjá henni!!
Ég kem þessu áleiðis en hún á þetta ekki langt að sækja stelpur, hmmmhmm..
kv. Helga
Glæsilegt hjá þér Nína, flottar vöfflur.:)
Ég hlakka til að koma í kaffi til þín!
Nína vildi að ég kæmi með smá viðbótarupplýsingar um vöfflurnar, þær eru sko alveg stökkar, maður þeytir fyrst eggjahvítur og rjóma og setur meira segja líka sterkju eða hvað það nú heitir til að gera þær stífari og þær eru öðruvísi en vanalegar vöfflur.
En þið verðið bara að bíða eftir því að þið komið í kaffi....
kveðja Nínumamma
Hæ hæ. Ég panta Nínuvöfflur á sunnudaginn ;) Auðvitað mætum við eða ég, sjáum til hverjir koma OK.
Hlakka til að hitta ykkur.
Kveðja, Inga Björk
Skrifa ummæli
<< Home