Til hamingju með afmælið

Hann elsku litli bróðir minn á afmæli í dag, til hamingju með það. Hann Denni dæmalausi sem var þegar hann var smá ponni og ég dröslaðist með hann út um allt. Hann hefur mátt gera ýmislegt og hefur verið heppinn eins og við hin reyndar líka. En elsku bróðir, til hamingju með daginn, ég veit að það var sungið fyrir þig í gær eins og við fjölskyldan gerðum áðan í símann. Við óskum þér velfarnaðar á komandi ári og gæfu og hamingju í lífinu yfir höfuð og að þínar óskir uppfyllist.


2 Comments:
Til hamingju með hann Atla bróður þinn. Ég man svo eftir honum þegar að hann var yngri...hann var einmitt svolítill Denni Dæmalausi.
Það var svo gaman að tala við hann því að hann var svo opinn og mikið að pæla í hlutunum;o)
Takk fyrir :D
Skrifa ummæli
<< Home