Gámur
Gámurinn er kominn og tæmdur.
Hann kom í dag um kl.14. Hér með okkur biðu Svenni og Bogga, Valli, Arnar vinur Atla, Atli og Alex ásamt mér og Balthasar. Bogga sá um börnin og hinir voru að hjálpa með að raða úr gámnum, raða inn í bílskúr, setja á bretti, laga til og svo framvegis. Óli kom svo líka þessi dúlla, fékk líka frí í vinnunni eins og Atli og Alex til að stússast í þessu.
Fyrst kom gámurinn og svo stuttu síðar kom Tollurinn, þrír starfsmenn, einkennisklæddir og til í að gáma góssið sem við vorum að smygla til landsins. Þeir voru mjög alvarlegir í fyrstu og tilkynntu okkur á hátíðlegan hátt að okkur væri enn fært að tilkynna einhverja hluti sem við væru í gámnum og ekki gefnir upp! Nei það er ekkert, þetta er bara búslóðin sagði ég frökk. Ekki það að hjartað hafi ekki hoppað í nokkra aukahringi en það gerir það nú við minna rask. Amk þá voru þetta orðnir mínir ágætustu vinir að lokinni tollskoðuninni og kvöddum við í góðu og hver veit nema þau flytjist búferlum til Akranes einhvern góðan daginn.....
Allt verður gott!!!!
Svo var vinnufundur kl.16 og var hann til að ganga sex. Kl. 19 byrjaði svo skólaskemmtun um víkingana hjá Nínu. Ég og Balthasar fórum til að fylgjast með. Nína var búin að útbúa powerpoint sýningu og las upp í mikrofon, rosalega flott hjá henni. Ég var ekki búin að lesa yfir þannig að það voru nokkrar stafsetningavillur í þessu hjá henni en glæsilegt framtak.....
Nú og svo er bara dagur að kveldi kominn þrátt fyrir að það sé enn bjart úti og kl. að ganga miðnættti.....
Svo á að þjöppumæla á morgun, vonandi bara gott þar líka....
þreytuknús
HElga


9 Comments:
Ég vildi að ég hefði verið á svæðinu til þess að hjálpa ykkur!!
Snorri var einmitt kynnir þegar að hans árgangur sýndi árangur vinnu sinnar í víkingaþemanu;o)
Heiðrún
Úff meiri hasarinn!!
en frábært að þetta sé afstaðið :)
bið að heilsa
Já, gott að þetta er afstaðið og vonandi hefur allt verið í lagi í þetta sinn?
Reyndu svo að hvíla þig Helga mín ;)
Nína hefur örugglega staðið sig vel:)
Þú lest bara yfir hjá Nínu næst ef kennarinn gerir það ekki, þær eru alltaf leiðinlegar þessar stafsetningavillur!
Fréttin var á baksíðu dv í gær, mér finnst rétt farið með málið þar. Engar ýkjur eða vitleysa....
kv.Helga
Til hamingju með afmælið elsku Helga mín og gott að heyra að þið séuð búin að koma ykkur fyrir.
Sjáumst bráðum Kidda
Gott hjá þér að fara með þetta í blöðin. Ég ætla að fylgjast með á visir.is og fréttablaðinu á morgun...er ekki oft sem að DV-fréttir koma þangað deginum eftir??
En allavega gangi ykkur vel,O)
Heiðrún
Gott að gámurinn kom þó ekki tómur til landsins :)
Er hægt að sjá fréttina á netinu? DV er ekki lengur þar.
Hafið það gott.
Inga Björk
Neibb, ég hef heldur ekki fundið fréttina...er hægt að finna hana á netinu?
Heiðrún
Hef ekki heldur fundið fréttina á netinu. Mjög sérkennilegt mál. Ég mundi skanna hana inn og setja hana hér en Atli á bara prentara.
ÉG geymi hana og sýni ykkur þegar þið komið.
Kveðja
Helga
Skrifa ummæli
<< Home