miðvikudagur, júlí 18, 2007

Lífið og tilveran

Það er naumast mikið að gera hjá sumum. Ég er bara ánægð ef ég kemst til ömmu Lillu eins og þrisvar í viku eins og dagskráin er hjá mér þessa dagana. En það er bara gott af því að segja að hafa nóg á milli handanna. Ég á auðvitað við nóg að gera, ekki endilega nóg af peningum. Hihi...

Nú eru nýjustu fréttirnar þær að Balthasar er orðinn eins árs og byrjaður að ganga. Hann sleppti takinu þremur dögum eftir afmæli sitt sem var 13. júlí og byrjaði að ganga 16. júlí. Alveg svakalega flottur strákur. Lyftir mjöðminni vel með þegar hann gengur, bara krútt.

Svo var verið að steypa í dag, platan komin sem þýðir bara afsal og lán á næstu dögum JEss....

Annars er alltaf gaman að fá fólk í heimsókn og búið að vera erilsamt hjá okkur nú upp á síðkastið síðan við komum heim. Mikil vinna á einum hluta fjölskyldunnar sem vinnur baki brotnu í því að reisa hýbíli okkar. Glæsilegt það en það er nú alveg ómetanlegt að hafa ástvini sína nálægt sér þótt að það sé líka söknuður til Þýskalands í mér.

Þórunn og familý eru nú komin til landsins, til lukku með það, ég hlakka til að hitta ykkur. Svala ég er búin að reyna að ná í þig, komdu í kaffi elskan. Inga Björk Hafliðad. þú lætur mig nú heyra í þér hvernig dagskráin er, ekkert mál að skreppa til Rvíkur til að hitta þig. Heiðrún já það var ansi leiðinlegt að hitta ykkur ekki, vona að við verðum ofarlega á stefnuskránni næst....

Anna B. bíð spennt eftir fregnum elskan!!!
nú svo bara þið vitið, Maza, Frú Sigríður og Mr.Sveinson að kveðja Danaveldi og búa sig undir kommúnulífið á Jörundarholtinu, ég hlakka mikið til að fá hana mömmu og vinkonu mína heim. Höfuð fjölskyldunnar, mikið búið að vanta þegar hún er ekki heima. En það er semsagt um svipað leiti og Nína krútt fer í þriggja og hálfs vikna reisu til Þýskalands sem þau hjúin koma á Skagann.

Gvöð hvað þetta er orðið langt, góða nótt elskurnar og kvitta svo....

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já, þetta var frekar fúlt að ná ekki heimsókn! Ég var á þvílíku spani allan tíman og kom bara "heim" seint á kvöldin. Ég t.d. náði bara einni hálftíma heimsókn til mömmu minnar:(

Ég er samt afskaplega þakklát fyrir að hafa hitt ykkur öll.....sitt í hvoru lagi;)

Þið verðið fyrsta fólkið sem við heimsækjum næst!!

Knús til ykkar og gangi ykkur vel.

Heiðrún

1:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk Heiðrún mín, jáþetta var ansi mikið með útlendingana... Hlakka til næst!!!

kv
Helga

9:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nú er maður kominn á Skagann, gaman að hittast við tækifæri og bera saman bækur okkar í húsbyggingamálum;)
kv. Rannveig

3:56 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Til hamingju med pløtuna. Gangi ykkur vel med framhaldid!!! (ætti eg ad segja framhjahaldid (ha ha ha?)
Nu erum vid ad leggja lokahønd a thrif litlu ibudarinnar og erum byrjud ad pakka.

Hløkkum ædislega til ad koma heim og hitta ykkur øll elskurnar.
Bestu kvedjur :)

1:23 e.h.  
Blogger Silja said...

Kvitt, kvitt, kvitt... Það er víst aldrei lognmolla í kringum þig Helga mín!

6:42 f.h.  
Blogger Karen said...

Alltaf nóg action á þér elskan :)
Það verður sannarlega gleðiefni þegar Mamma Rokk og stuepigen snúa heim á ný!!
Öll fjölskyldan sameinuð, er hægt að biðja um nokkuð meira??

2:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nei ég veit ekki hvað ykkur finnst en lífið er dásamlegt og maður lifir bara einu sinni. Það er um að gera að hafa nóg að gera svo lengi sem það raski ekki svefnrónni. Takk fyrir kvitt, kveðja Helga

3:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi ykkur rosa vel Helga mín. Margrét biður að heilsa Nínu.

kær kveðja
Christel

12:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með eiginmanninn :)
Kv. Þóra.

12:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters