Takk fyrir síðast
Það er alveg ómetanlegt að hafa góða í kring um sig. Ég þakka fyrir mig elsku vinkonur, það var yndislegt að hitta ykkur á Akranesi. Í dag skrapp ég svo í bæinn og borðaði morgunmat með Þóru systur minni sem er búinn að fá æðisgengna einkunn fyrir lokaverkefnið sitt og er þar með að útskrifast úr HÍ úr Ísl. í júní. Um helgina förum við svo til hennar í smá hóf til að fagna þessum áfanga. Gaman að þessu öllu saman.... Svo fórum við í smá verslunarleiðangur í kringlunni og á laugarveginum og enduðum á því að kaupa fínar sumargjafir fyrir krakkana og skó fyrir Balthasar. Svo fórum við í kaffi til Önnu Siggu og krakkarnir voru voða fínir saman að leika sér.
Nú það er margt um að vera hjá okkur þessa dagana. Við erum á fullu í sambandi við lóðina og allt í kringum húsið, lánveitingu, tryggingar fyrir bílinn, tolla bílinn og svo er stuðstund í næstu viku. Stefnum á að kíkja í heimsókn í sumarbústað á sunnud. og á mándu. er svo frídagur þannig að þetta verður yndisleg helgi. Nína á ekki langt eftir í sumarfrí þessi elska, hún er á fullu að plana þýskalandsför í sumar, vill heimsækja vini og vandamenn, æðislegt stuð.
jæja ég læt heyra í mér bráðum, er farin á vit drauma....


2 Comments:
Já þetta var frábært hjá Þóru :)
Það verður sko nóg að gera hjá ykkur næstu mánuði Helga mín! En það er nú bara gaman, ykkur á ekki eftir að leiðast. Hvað er stuðstund og hvert eruð þið að fara í sumarbústað?
Bestu kveðjur héðan úr sólinni og hitanum :)
Kvitt, kvitt, leit við í "virtual" heimsókn ;) Gaman að heyra frá þér/ykkur.
Sjáumst vonandi í sumar
Kveðjar úr sól og sumri
IBH
Skrifa ummæli
<< Home