miðvikudagur, maí 30, 2007

Til hamingju Þóra

Hún á afmæli í dag, hún er 27 ára hún Þóra systir, hún á afmæli í dag.

Elsku Þóra innilegar hamingjuóskir í tilefni af afmæli þínu í dag, vona að það hafi verið tekið vel á móti þér í vinnunni og að dagurinn eigi í alla staði eftir að verða ánægjulegur og eftirminnilegur. Við óskum þér bjartrar framtíðar, frama í starfi og lífsánægju. Það eru spennandi tímar framundan, útskrift úr Háskólanum í júní og svo bara allar dyr opnar þér elsku systir. Lifðu heil.....

Ég ætla aðeins að segja ykkur frá skemmtilegri uppákomu um helgina. Við fengum óvænta gesti til Þóru á laugardagskvöld er hún bauð í útskriftar og afmælisboð. það var yndislegur matur, úrbeinað lambakjöt á grilli og allt bara í jollý. Haldiði ekki að mamma og Þórður hafi komið í smá óvænta heimsókn til Íslands yfir helgina. Alveg frábært surprise. Þau eru búin að vera á fullu síðan þau komu að hitta vini og ættingja, elda og þrífa. Já svona eru þau.. EN það er búið að vera æðislegt að hafa þau hér, amk finnst mér það. Það verður gaman að fá þau alveg heim í sumar.

Nú við skruppum í bústað til Önnu og Ragnars, það var æðislega notalegt, borðað grillkjöt og salta og grænmeti, alveg nóg af öllu. Gaman að fara alltaf í matarboð.

Jæja nú ætla ég að skreppast með mömmu og Þórð uppá flugvöll, við ætlum að hitta Þóru í hádeginu áður og fá okkur kaffi saman.

bið að heilsa í bili
knús og kram
ykkar Helga

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Takk kærlega fyrir mig.
Já það er búið að vera gaman að fá þau skötuhjú heim. Heldur betur var þetta óvænt :)

Gangi ykkur vel í dag og sjáumst fljótlega.

Kv. Þóra

2:58 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Ooooo..... þetta var alveg frábært og ekkert nema yndislegt að kíkja aðeins heim. Takk fyrir okkur elskurnar.

Við erum að fara að leggja í hann.

Bestu kveðjur :)

8:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært fyrir ykkur að fá svona surprise!!! Þetta hefur eflaust verið besta gjöfin hennar Þóru!

Til hamingju með afmælið í gær Þóra mín og innilega til hamingju með námslokin í Háskólanum;)

Heiðrún

8:57 f.h.  
Blogger Karen said...

Takk fyrir síðast og til hamingju með litlu systir :)

1:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir síðast já sömuleiðis, þetta var alveg frábært, það er núj ekki hægt að óska sér betri gjöf en svona uppákomu.

Nú er maður bara alveg steiktur eftir góða veðrið á íslandi. Gaman, gaman... á laugard. er svo dagur hafsins á Akranesi, nóg að gera og væntanlegt kaffi á sunnud. sjáum til...

bestu kveðjur
Helga

12:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Grillkjöt, matarboð, kaffiboð...... týpískt íslenskt :) Alltaf nóg að borða.

Ég skellti mér á "Islandstammtisch" í Dus í dag. Hitti fullt af skemmtilegum "Íslandfríkum" Voða gaman.

Til hamingju með systur.

Sjáumst, Inga Björk

10:19 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters