sunnudagur, júní 03, 2007

Hátíð hafsins

Ég vil byrja á því að óska Brekkuskessunum til hamingju með yfirburða sigur í kappróðri, það var yfirburðarsigur í þeirra flokki en þær voru einar í flokki HAHAHAHA.... geggjað stuð....

ÉG fór með mín börn og hitti Önnu Björk og Daniel og þeirra börn. Þarna voru margt um manninn og margir sem maður hitti og þekkti en það var að margra mati ekki nægilega góð mæting í 6000 manna bæjarfélagi. Þar voru pulsur og svali fyrir svanga gesti og hin besta skemmtun. Gamla Akraborgin kom í heimsókn og það var hægt að fara þangað í heimsókn og skoða, algjör perla en eins og Hannibal hennar Eyglóar sagði þá fannst manni hún alltaf vera stærri í minningunni. SVo kom björgunarþyrlan á svæðið og bjargaði manni úr sjónum. Það var gaman að sjá það. Við skelltum okkur svo í frábært kaffi slysavarnafélagskvenna í Jónsbúð og átum þar á okkur gat af glæstum kræsingum. Síðan héldum við heim á leið eftir 4 tíma útiveru og heyrðum rétt í honum Ragga Bjarna meistara tónlistarinnar taka létta slagara á pallbílnum. Alveg draumur....

Í dag koma svo ættbörn Helga Júl og Huldu í kaffi til okkar. Ætli við verðum ekki 20 hér í kaffi þegar allir eru mættir en ég hlakka mikið til. Við sjáum til hvort við skreppum ekki í Garðalund og kíkjum í kirkjugarðinn og á lóðina.

Á lóðinni er bara bið eins og er, þarf að slétta meira áður en grunnurinn verður gerður en vonandi næst það um næstu helgi. Spennandi....

Síðasti skóladagur hjá Nínu er á morgun og svo er hún komin í frí þessi elska.

ÉG heyrði aðeins í mömmu og Þórði í gær, bara fínt að frétta frá Ærö, gott veður og gaman á hátíð harmónikkuleikara.

Jæja best að fara að undirbúa, ég bið ykkur vel að lifa og þar til næst
Helga

7 Comments:

Blogger Karen said...

Takk fyrir síðast!
Æðislegt alveg hreint!

12:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ. Ég missti af sjómannadeginum þetta árið en næ Verslunam.helginni í staðin. Var líka tvö sumur í röð á sjóm.d. heima.

Hvað er Nína svo að brasa í fríinu og hvenær kemur hún til Þýs.?

Bis dann
Inga Björk

9:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

það var svaka gaman að hittast, sömuleiðis takk.

Nína skvísa verður með brósa í vist, fer á reiðnámskeið (getur það verið) :) Svo fer hún í svaka reisu til Þýskalands 30.júlí og kemur ekki aftur heim fyrr en 23.júlí. Gaman hjá henni. Við hin vinnum sveitt svo hún komist í þetta allt saman ásamt því að byggja hús með vinstri....

jæja þetta er orðið ágætt

En það er alveg synd hvað sjómannadagurinn er að missa mátt sinn, ég hafði mjög gaman af þessari skemmtun og krakkarnir líka en vá hvað mættu fáir.
kv
Helga

12:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hérna í gamla daga var Sjómannadagurinn á svipuðum stalli og 17. júní hjá manni, en ég hefði nú samt sem áður viljað vera þarna með ykkur....verð á írskum dögum í staðinn;o)

Heiðrún

10:50 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi en leiðinlegt að það hafi verið svona fáir sem tóku þátt í sjómannadeginum.

Við fórum síðasta sumar út á eyjuna Ærö, þar býr frændi minn með sína fjölskyldu og það er svo fallegt þarna, vona að mamma þín og Þórður njóti þess að vera á þessari paradís.

Kær kveðja
Christel

9:52 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Við nutum þess svo sannarlega að vera á Ærö, þetta er yndisleg eyja :)

Helga verður Nína ekki til 23. ágúst í Þýskalandi eða fer hún þangað 30. júní?

Bestu kveðjur úr 28° stiga hita (inni). Mælirinn úti sýnir 31°, það er allt of heitt frir mig!!!

11:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Guð hálpi þér mamma í þessum hita, drífðu þig á ströndina eða í útisund, það er ómetanlegt að geta kælt sig niður í vatninu. Það líður yfir ykkur inni í þessum hitar.

Jú Nína kemur aftur 23.ágúst.

Já það er greinilegt að maður verður að fara til Ærö næst....

kv Helga, 10 stig og rigning.... alskýjað

11:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters