Steypa og Nína í fríi.
Algjör steypa kom kl.9 í morgun og nú er semsagt búið að setja steypu í rúml. hálfa veggina, upp fyrir gluggana. Allt að gerast, myndir koma innan skamms.
Nína hélt í stórferð í morgun, hún flaug til Þýskalands kl.7:25 og verður þar í þrjár og hálfa viku, ferðast norður og suður með lest til að heimsækja og vera með vinum og ættingjum sínum þar. Hún var spennt eins og grjón í morgun eins og gefur að skilja en er komin í lestina til Hannover og allt gengið vel hingað til. Afi hennar náði í hana og kom henni af stað í lestina, ekki amalegt að hafa svona góða að sem leiða mann áfram. Hún er mjög sjálfstæð og er orðin svo stór að hún hefur bara gaman af þessu. ÉG er bara spennt að fá hana aftur heim og hún er nýfarin.....
Mamma og Þórður komu í gær heim eftir árs dvöl í Kaupmannahöfn, það er yndislegt að fá þau heim og geta knúsað tímunum saman....


3 Comments:
Spennó að sjá myndir af algjörri steypu!
Nína er svo þroskuð og dugleg að hún ætti að fara létt með að ferðast um Þýskaland út og suður :)
Gott að vera búin að fá elskurnar heim frá Danmörku!
Það er nú lítið hægt að birta myndir af vél sem var skilin eftir í bílnum mínum! En ég er ótrúlega lukkulegur með nýju myndavélina mína :þ
Hæ hó frá Húsavík. Hef bara ekki gefið mér tíma til að kíkja á bloggið þitt, skamm skamm.... Hef sett myndir á netið og kíkt á póstinn minn, annars bara notið þess að vera hér í sumarfríi :D
Ég kem ekkert suður fyrr en daginn áður en ég flýg út (16.8) og verð hjá vinkonu í Kef. Aldrei að vita nema að ég komi við á Akranesi á leiðinni suður, læt þig vita.
Til hamingju með litla gaur, þ.e. afmælið og labbið. Flottur eins og alltaf.
Sé að það gengur vel með húsið, allt að koma hjá ykkur. Frábært bara.
Hafðu það gott þangað til næst...
Inga Björk
Skrifa ummæli
<< Home