þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Já það er aldeilis að vorið lætur á sér bera. Það er spáð 18 stigum næstu daga, fuglarnir syngja og maður getur verið úti á peysunni, næstum því. Reynda á að rigna en hva með það.

Við vorum með heimsókn um helgina, það var voða gaman að sjá hann Pjetur Már Hjaltason og hans foreldra. Hann er alveg yndislegur drengurinn, svo góður, svo duglegur að borða og algjört krútt. Gaman að þessum krökkum alltaf hreint. Já Nína fékk að gista hjá vinkonu sinni og það var mjög gaman fyrir hana, sem þýddi að við gátum sofið til tíu, já með gesti í húsinu og lágum uppí rúmi til klukkan tíu haldið að það sé. Hann Pjetur fékk að borða klukkan átta og svo fór hann bara að leika sér í skápunum niðri, það eru svo flottir dúkar þar..... Já og hann lék sér líka aðeins með sitt dót en það er ekkert spennandi. Mamma hans sagði svo þegar þau vöknuðu almennilega að hann hefði verið búinn að drasla allt út, þessi elska sem er 13 mánaða.... Geri aðrir betur. Við fórum auðvitað aðeins hér útí bæ, það var markaður, fórum í Karstadt, jee það er svona búð Íslendinga hér í Detmold, mæli með henni. Svo vorum við góð í rauðvíninu og hver haldið þið að hafi unnið í Wizard, já ég, sem er alltaf lægst nei nei það var ekki verið að leyfa gestunum að vinna heldur vann ég sjálf. Ég trúði þessu varla, held að Alex hafi bara leyft mér að vinna,,,,, það er stundum svo erfitt að koma bara heim um helgar..... Já og þau Björg og Hjalti voru ansi dugleg að hjálpa okkur að tæma geymsluna, þau eru að flytja heim og vildu eiga hluti sem við hefðum annars bara hent. Mjög heppilegt.

Jæja nóg um það nú er að magnast spennan fyrir þorrablótið í Hamburg á laugardaginn, Nína ætlar að gista hjá Bjarka, Kidda og Kristínu í Höxter, hún er svaka spennt líka.
Þóra takk fyrir brandarana sem þú sendir mér, mér fannst hann mjög fyndinn með þorrann. :-þ

Lúlli og Gréta, áfram svona....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters