Það fer að styttast í flutninga,,,, já það fer að líta út hér eins og á lager í búð, allt í kössum af sömu sort. ÞEtta er svo sniðugt með þetta fyrirtæki sem flytur fyrir okkur. Maður fær flotta kassa þar, svona venjulega með handföngum mjög tæknilegt og svo eru sér fatakassar og þá er hægt að hengja herðatréin beint inn í kassana, svakalega sniðugt. Svo fær maður pappír til að pakka brothætta inn, miða til að líma á hvað er í kössunum og svona brotthætt límmiða. Ef maður væri mjög flottur og ríkur þá mundi maður láta þá sjá sjálfa um að pakka og taka skápa niður og setja aftur upp á nýja staðnum. Það er allt hægt ég sver það. En ég er mjög ánægð með að hafa gert þetta þrátt fyrir að þetta kosti pening en hvað á maður að gera hér einn í útlöndum að flytja. Nei þetta var mjög góð lausn. Nú hlakka ég bara til þegar þessir fjórir fílhraustu menn koma og bera allt draslið í burtu. Þá á maður helst að vera með hressingu fyrir karlmennina. Ég er að hugsa um að hafa vatn og smurt brauð!!!! Mjög kerlingaleg. Svona er ég.
Heyrðið nú þegar ég vaknaði í morgun haldið þið að hafi ekki verið alhvít jörð. Já það hafði snjóað svona agalega í nótt að hálka og alles tók á móti mér í morgun í vinnunni. Já í vinnunni, það er semsagt búin heil vika í frí, ohh hvað frítíminn líður hratt. En það er nú ekki mikið mál að vinna þessar helgar, þegar maður hefur nóg annað að hugsa en vinnuna... Í gærkvöldi vorum við boðin til nágrannanna með villtu strákana, hér við hliðina á Volker (folker) og Anke. Það var ansi gaman að spjalla við þau. Við ræddum svolítið um stöðu kvenna og karla í samfélagi nútímans og hann er þeirrar skoðunar að hjón eigi að skipta öllu á milli sín, allri uppeldisvinnunni, heimilisvinnunni osfrv. Nema hvað konan hans átti ekki til orð og fór út að reykja, því hann lyftir ekki handtaki heima hjá sér og þetta kom semsagt úr hörðustu átt. Málið er nefninlega það að hann þolir ekki þegar fólk slítur samvistum hér í Þýskalandi eftir að hafa verið í giftri sambúð og konan heimavinnandi og umsjónarmaður barnauppeldisins. Þá á konan rétt á framfærslupening frá manninum, svona eins og mánaðarlaun eftir skilnað auk meðlags fyrir börnin. Þannig að fyrir marga menn er það mjög dýrt að skilja og þetta þurfa þeir að greiða út lif konunnar þótt að hún giftist aftur. Mér finnst þetta í lagi útaf því að það er nánast ómögulegt (að mínu mati) fyrir konur í Þýskalandi að ala upp börn og vera á fullu í vinnunni. Samfélagið er ekki undir það búið að taka á sig það hlutverk sem kemur í þess hlutverk við þær aðstæður. Já og nágranni okkar segir við konu sína að hann mundi aldrei borga þetta til hennar skildu þau einhverntíma skilja. Hann mundi þá segja að hann fengi það lítið í laun og svona því að það sé þáttur í hjónabandinu að skipta á milli sín hlutverkum. Konan gerir allt hjá þeim og hann ekki neitt. Frábært mál. Ég æsti mig svo yfir þessu ég sver það... En nóg um það
Í kvöld er svo spilakvöld hjá okkur og í fyrramálið eftir vinnu koma vinir í brunch til okkar.... brjálað að gera svona inn á milli kassana.... Bis dann, eure Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
laugardagur, mars 06, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home