hæ hæ og hó hó. Nú er það flott maður, ég byrjuð að pakka, Alex kominn heim og allt í rólegheitum. Eftir að hafa pakkað næstum tíu kössum á rúmum klukkutíma tók ég mér pásu þar til í næstu viku. Ég átti nú ekki von á að þetta gengi svo fljótt. Það leiðinlegasta sem maður gerir er að svekkja sig á að vera búin að pakka einhverju sem maður þarf á að halda þannig að ég ætla að fresta áframhaldandi pökkun um óráðinn tíma.
Alex er kominn, hann er eiginlega lasinn, svo fullur af hori og ógeði að hann bara sefur og sefur og reynir að hreinsa út úr kinn og ennisholum sínum með því að anda að sér gufu með japönskum náttúrudropum. Hann er svo mikið fyrir þetta. Já en það gekk allt vel hjá þeim og (sorry þetta voru 2500 m2 sýningarsvæði sem þeir voru að dunda við) nú á hann frí þar til á mánud. og kemur svo heim á miðvikud. þannig að þetta er ljúft líf næstu tvær vikurnar, verst að við erum að fara að flytja annars gætum við farið í stutta reisu einhvert.
Jæja en það er greinilega að koma vor, það fer ekki fram hjá neinum, það liggur við að maður þurfi ekki verkjaraklukku lengur því fuglarnir syngja svo hátt á morgnanna, það er eins og það sé einhver keppni í gangi hjá þeim elskunum. Það liggur samt enn snjór hjá okkur en hann er að hverfa svona smátt og smátt.
Við erum núna alltaf að plana hvernig við ætlum að raða í húsinu "okkar". Mér finnst ótrúlega gaman að hafa svona mörg aukaherbergi. Eitt til að nota fyrir vinnuherbergi, eitt gestaherbergi og já svo er eitt bara autt. Svolítið asnalegt en við erum aðeins að spá í þessu. Ég er orðin spennt að innrétta nýja húsið og hlakka til að vera atvinnulaus í einhvern tíma í sumar..... Jæja dúllur, bið að heilsa ykkur í bili, lúf HElga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, mars 03, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home