mánudagur, mars 01, 2004

Hann á ammæl í dag, hann á ammæl í dag, hann á ammæl hann Hlynur Björn Ólason, hann á ammæl í dag, hann er fimm ár í dag, hann er fimm ár í dag, hann er fimm ár í dagggggg hann á ammæl í dag. Húrrahh, húrraah húrraahh......

Já blessað veri fólkið, það er nú meira hvað tíminn líður. Ég gleymi því ekki þegar ég kom að heimsækja hana Auði á sjúkrahúsið á Akranesi daginn eftir að Hlynur fæddist, ég var þá í verknámi á sængurkvennadeildinni í Reykjavík og þessi litli hnoðri var nýfæddur, þessi rokkari sem er orðinn í dag, hann Hlynur. Já svona líður tíminn, eins og væri í gær, jæja næstum því, mamma var líka á sjúkrahúsinu í Reykjavík, ég held nýkomin á 12G, ótrúlegt.....Ég vona bara að pakkinn verði kominn fyrir næstu helgi þegar Hlynur heldur pabba megin upp á afmælið sitt..... Ég bið til guðs, þá kannski gengur það,,,,,

Já það er nú hálf skrýtið að vera heimavinnandi húsmóðir,,,, ég ætla að fara að byrja að pakka en vildi bara láta heyra frá mér áður en rykið fyllir öll mín vit og áður en Alex kemur heim. Já hann kemur annað hvort í kvöld eða á morgun, planið breyttist gaman gaman.

Á föstudaginn gistum við hjá vinkonu minni og það var nú meira gamanið, við tókum okkur videomyndina hvernig á að losa sig við gaur á tíu dögum (af því að hún er hér með þýskum titil þá segi ég þetta bara á íslensku). Það var létt og skemmtileg mynd, drukkum freyðivín og höfðum gaman, sem betur fer varð ekki neitt úr þessu með náttfötin!!!! Þegar við svo vöknuðum á laugardaginn þá var búið að snjóa svo mikið að það var amk 15 cm lag af snjó yfir öllu. Við auðvitað út að renna, alveg ótrúlega gaman, hún á heima í sveitinni þannig og það var enginn og við höfðum svo gaman og gott af þessu. Það lá við að maður væri með harðsperrur þegar maður kom heim. En það er búið að vera svo gott verður, snjór og sól og kalt, alveg bara frábært. EKki nein rigningarslydda eins og heima,,,,, hehehe. Nú og svo er bara kominn mánudagur í núll komma nix. Þannig að ég fer bara að snúa mér að pökkuninni....þar til síðar, ykkar XXX

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters