Hæ hó jibbý jei og jibbýi jei, ég er hætt að vinna í bili........'
Já það var nú ansi skrýtið að mæta í vinnuna í morgun á síðasta deginum (sem er ekki síðasti dagurinn því ég á eftir helgarnar mínar). Nema hvað að ég þraukaði hann og er bara í sæluvímu núna. Já fór beint í bæinn og keypti mér flott gúmmilaði í bakaríinu í tilefni dagsins og í kvöld munu flöskurnar fljúga, tæmdar af mér og vinkonu minni Fleur.
En það er missir í mörgum vinnufélugunum í vinnunni eins og alltaf þegar eitthvað nýtt tekur við, þetta tímabil kemur aldrei aftur og þetta voru oft góðar stundir sem við áttum saman nokkur hver. Á miðvikudag var farið út að borða saman og það var mjög gaman. Við Pirjo vinkona mín vorum til að verða ellefu og ég var orðin hálf ringluð eftir tvö rauðvínsglös, já það er tími að það komi sumar, ég þoli svo lítið á veturna. En það passaði vel að þetta kvöld var stuttu áður en ég hætti þannig hafði ég tækifæri að rabba við nokkra sem ég hafði gaman af. Svo daginn eftir kom ein góð samstarfskona mín í kaffi eftir vinnu, svona um hálf ellefu að morgni til og við áttum góða stund. Hún gaf mér athyglisverða kveðjugjöf. Hún er mikil tilfinningavera og spáir alltaf mikið í því sem er að gerast í vinnunni og þarf oft að rabba um tilfinningar sínar í sambandi við hitt og þetta sem mér finnst gaman af. Hún gaf mér bolla og á bollanum var táknræn mynd. Það var mynd af kindum, hvítar kindur að labba til vinstri út um allt á bollanum og ein kindin var svört og hún var að labba til hægri á móti öllum hinum og hún var með breiðasta brosið á andlitinu!!!!! Hún sagðist hafa valið hann viljandi því henni fannst myndin vera svo táknræn fyrir mig, alltaf segjandi mína skoðun þrátt fyrir að hún sé ekki alltaf óskuð. Ég ætti alls ekki að skilja þetta eins og ég væri svarti sauðurinn!!!! Spes en fallegt af henni.
Já og í kvöld ætlum við Nína að gista hjá Fleur og hennar tveimur börnum en maðurinn hennar er fjarverandi fram á laugardag og þess vegna bauð hún mér í náttfatapartý!!! Ég hef aldrei farið í svoleiðis og hlakka bara til. Svo sjáum við til hvað verður úr helginni, hvort ég byrja að pakka um helgina eða á mánudaginn..... Góða helgi
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
föstudagur, febrúar 27, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home