föstudagur, apríl 23, 2004

Ég er mætt snemma í dag. Það hefur sýna skýringu. Tölvan var í gangi í alla nótt og ég ætlaði bara rétt að skella mér á netið áður en ég slekk á henni. Það er rólegt prógrammið í dag. Tók til í Hauswirtschaftsraum í gær, fór með kassana niður í kjallara og reyndi aðeins að raða þar. ÞEtta herbergi er svona fyrir húsmóðurina, er á næstum hverju heimili, þar sem konan getur straujað, brotið saman þvottinn, saumað, æft sig á píanó, fengið sér gefins svefnsófa, þá á hún bara heima þarna. Nei þetta er nú meira í gríni en það er margt hér í þýsku samfélagi sem mér finnst meira en skrýtið. Þriðja hver kona er útivinnandi, í mesta lagi 50% vinnu. Svo sá ég tölur frá Íslandi á mbl.is í gær og þar kom fram að konur á Íslandi vinna 43 tíma á viku. Ég hugsaði bara með mér, vá og ég þekki nú ekki margar konur sem eru í 100% vinnu, ókei, mamma, Heiðrún og örugglega einhver af hjúkkunum en eruð þið ekki flestar í 80 % vinnu. Alex hélt að þessar tölur væru ómarktækar þar sem þetta segði ekki í raun um hlutfall þeirra sem eru í fullri vinnu en ég skil þetta eins og þetta var sett fram hjá Mogganum!!! AMk þá er ég stolt af Íslensku kvenfólki og hananú. Hér er það hreint og beint gefið konum í vöggugjöf að vera þjónn og sjá um að allur þvottur sé straujaður og elda í hádeginu og svona. Ég er ansi góð í þessu hlutverki þótt ég segi sjálf frá, kannski því miður. En ég sé þetta sem vinnu mína og þá er þetta allt í lagi. Ég á eflaust eftir að lenda í krísu þegar við flytjum einhverntíma til Íslands aftur því þá er ég búin að gera allt of lengi fyrir alla fjölskyldumeðlimi og þegar þeir þurfa að standa á eigin fótum á það eftir að fara í vaskinn til að byrja með. En þetta er einhver óhjákvæmileg þróun sem hefur átt sér stað hjá mér og kannski meira ómeðvituð til að standast kröfur samfélagsins þar sem ég er nú frekar ákúrat manneskja. Ég væri aldrei týpa í að gera eitthvað allt öðruvísi en allir í nágreninu, fá mér pink bleikan háralit eða eitthvað þess háttar. Svona er maður.

En ég ætlaði endilega að segja frá því að Nína og allur bekkur hennar fer alltaf með faðirvorið á hverjum morgni áður er skóladagurinn hefst. Svo bað Nína mig í gærkvöldi að fara með faðirvorið með sér. Hún spurði mig hvaða þýðingu það hefði að fara með faðirvorið, já að guð kannski passi hana þá yfir nóttina, en hún var eitthvað svo þreyfandi, leitandi að einhverju sem myndi hjálpa henni. Það er yndislegt hve góð barnstrúin er og ég er ánægð með kross sem amma Lilla gerði í handavinnunni á Höfða, hann hangir núna yfir höfuðstæði hennar á vegg fyrir ofan rúmið hennar Nínu og þar á vegg við vinstri hönd hangir Íslenska faðirvorið en hún kann það ekki utanaf. Ég gleymi því ekki þegar við vorum í smíðum hjá Guðbjarti smíðakennara í Brekkkubæjarskóla en hann lét okkur alltaf fara með faðirvorið og maður var hneykslaður. EN hér er þetta daglegt brauð, ég tek það fram að 98% bæjarbúa í Coesfeld eru kaþólskir. Nóg um það í bili, góðan dag í blíðunni í Þýskalandi og á Íslandi og já GLEÐILEGT SUMAR.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters