miðvikudagur, apríl 21, 2004

Já, hækkandi sól og blíða, nú er ekki eftir neinu að bíða. Ég fór á atvinnuleysisskrifstofuna í dag og fékk enn annað eyðublaðið til að fylla út, áður en ég er búin að skila því gerist ekki neitt. Hananú, þá er bara að taka fram pennann og skrifa fallega ástarsögu, ung kona, nálgast óðfluga þrítugt, elti mann sinn 200 km þar sem hann er með vinnu. Osfrv.osfrv. en ég sagði nú við starfsmanninn sem talaði við mig í dag að ég væri viss um að fá vinnu, bara ekki í sumar, nei ég sagði það nú ekki en svona hugsar maður. Ég hef líka nóg að gera hér heima. Eins gott að Nína fái góða aðlögun og svona, jájá maður hefur nú eitthvað að hugsa um þó maður vinni ekki. Látum Lúlla vita það.....

Ég er svona aðeins að komast í ró núna, les blöðin á morgnana og borða morgunmat með fjölskyldu minni sem mér var á vinnutíma mínum alltaf mér ómögulegt, gat ómögulega verið að draga þau klukkutímum fyrr úr rúminu til að borða með mér morgunmat. Já mér finnst þetta lúxus, líka það að vera heima. Auðvitað er þetta langdregið til lengdar en þá er bara að fara á námskeið og eitthvað....baka eða bara leggja sig. Svona eru pælingarnar hjá manni, mér er alveg frjálst að gera það sem ég vil. Í dag ætla ég að kíkja í einhverja búð í næsta þorpi sem selur efni í gardýnur. Ég er búin að finna saumavél sem ég ætla að kaupa mér í afmælisgjöf. Hún er frá Privileg, þekkir þetta einhver, og er með 20 prógröm og svo er hægt að sauma hnappagöt bara með því að setja töluna í þar til gerðan fót og þá gerir vélin nógu stórt gat. Svaka sniðugt... Hún er til hjá Quelle og er á mjög góðu verði. 179 Evrur og ég er mjög sátt við það. Það er hægt að fá Husquarna saumavél fyrir 600 Evrur en omg, ég hendi þá minni, eftir tíu ár ef hún er þá ónýt og kaupi mér aðra mér finnst svona dýrar saumavélar fyrir það sem ég ætla að gera algjör óþarfi.

Já en nú ætla ég að mála eina hurð, ætla að prufa hvort það gengur þegar hún er á lömunum, því ég nenni ekki að taka hana af.... hvað sem þetta nú heitir.... bæbæ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters