mánudagur, apríl 26, 2004

Hæ hæ og hó, daaarraaaraarada...
Það er alltaf sama blíðan hér fyrir sunnan, það er sól og um 20 stig á hverjum degi og það nánast í heila viku núna. Ég á ekki til orð. En þetta er æðislegt og við Nína ætlum að kaupa sandala á hana og stuttbuxur því eymingja barnið á engar stuttbuxur. Það er svona þegar maður getur ekki notað þær sem maður átti á síðasta og þarsíðasta ári.

Á föstudaginn fórum við Alex í sund hér í bæ, sem var ekki frásögu færandi nema lyktin í sturtunum minnti mig svo á Bjarnalaug. Ótrúlegt. En það er nú ekki eins flott laug hér og var í Detmold. Það er rennibraut og ein sundlaug til að synda í, ein krakkalaug og ein barnalaug. Já og svo er ekki meir, frekar fátæklegt, en það eru stökkbretti, eins, þriggja og fimm metra, en ekki meir. Eins gott fyrir eyrun, ekki satt Óli. Svo á laugardaginn vorum við svaka dugleg hér, Alex setti listana fyrir fæturnar á skápunum í eldhúsinu, setti líka upp vinnuborð fyrir mig í konuherberginu og ég og Nína settum upp hillu í kjallaranum og svo fórum við í bíltúr. Keyptum okkur sumarblóm og Aspas. En Aspas vertíðin er byrjuð og ummm en gott þetta fæði. Já mamma þið náið þessu í ár, ég held að tíminn sé til 25 júní en það er yfirleitt nokkra daga framyfir. Það verður nú gaman að smakka það. Já og svo á sunnudaginn þá fór Alex til Leipzig og hann verður þar fram á fimmtudaginn. Svona er þetta. ég fékk náttúrulega strax á laugardaginn boð um að koma á atvinnuleysisskrifstofuna, jesús hvað mér finnst þetta ömurlegt. Ég sver það mér líður bara illa yfir því að ætla mér að fá atvinnuleysisbætur, ég er ekki normal held ég.

Jæja, nóg að gera, var að versla og á eftir að ganga frá öllu draslinu. Erum komin með nýtt númeraspjald COE AH 10, frábært ekki satt, kær kveðja ykkar Helga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters