jæja þá er ég orðin þrítug. Ég trúi þessu ekki, mér sem finnst það vera svo mikið. Æi ég viðurkenni nú alveg að það verður alltaf erfiðara að fara upp tröppur, hreyfa sig frá sófanum, halda í við Nínu á línuskautum og Alex í að skokka. Kannski verð ég bara að fá mér eitthvað vítamín eða eitthvað. Kannski er þetta vorþreyta, nei ég segi nú bara svona. Smá grín... aðeins að pirra ykkur!! Mér hefur aldrei liðið betur, í alvöru, ótrúlega fit, ótrúlega gott bragð af hvítvíni, ótrúlega gaman að spila fram eftir öllu og dreypa á úsó. (Minnir mig á að ég verð að muna eftir vodka ahoj fyrir Lú og Gretu því við ætlum að hittast hjá þeim í júrófisjón partý á laugardaginn). Já og ótrúlega gaman að fara að Walken tvisvar í viku hér í bæ með gömlum kerlingum og körlum, einn sætur gamall... sko miklu eldri en þrjátíu kemur alltaf að sækja mig, dúlla!! Ekkert smá tempó hjá gamla settinu, ótrúlegt, ég alveg eldrauð alltaf og seinast þá sagði einn við mig (við vorum alls 22, og vorum að tegja á eftir sportið) heyrðu, þú ert svaka rauð í framan, þetta hefur verið allt of erfitt hjá þér. Já takk maður, hugsaði ég bara og hló$%&&/%$&%%$$ *ræst* ég skal sko láta þig finna fyrir því næst maður hugsaði ég.....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, maí 12, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home