En ég átti alveg frábærann afmælisdag og takk allir fyrir kveðjurnar frá ykkur. Ég sver það ég var örugglega meira en tvo tíma í stanslausu símasamtali um kvöldið. Greiin þau sem reyndu og reyndu og gáfust ekki upp. Það var eins og ég hefði verið orðin fimmtug eða eitthvað. Svo fékk ég ímeil og kveðjur á hjúkkublogginu og á mínu bloggi. Frábært, það er svo gaman þegar maður finnur að það er hugsað til manns. Já surpreisið var að á sunnudeginum (deginum fyrir afmælið mitt) komu tengdamamma og Jan í heimsókn..... MAmma alveg á tauginni þegar hún heyrði það því hún hélt að við myndum koma til Íslands. Allavega, það var mjög gaman að fá þau og við áttum mjög skemmtilegan dag saman. Á afmælisdeginum fór ég í andlitshreinsun, djúpandlitshreinsun, maska, förðun og eitthvað meira sem ég kann ekki nefni á nema fékk nudd fyrir andlit, herðar og bringu. Mjög huggulegt af Alex sem var sannfærður um að hafa séð eina hrukku og vildi að hún yrði fjarlægð hið fyrsta, skemmtileg þessi elska. Svo eftir blómakaup og freyðivín fórum við út að borða og áttum skemmtilegt kvöld. Bara smá information.. þá er ég hætt í dag.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, maí 12, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home