Ég var eitthvað að skoða á netinu og rakst þar á einn ungann dreng sem hefur dáið 25.apríl á Íslandi að eigin ósk. Ég sver það ég er ekki að jafna mig á þessu. Sjálfsmorð, þá veit ég um tvo Íslendinga sem hafa framið sjálfsmorð á tíu dögum. Kannski er þetta ekki mikið en mér finnst að það hljóti eitthvað að vera að. Er eitthvað í menningu okkar Íslendinga sem leiðir ungt fólk eða fólk á öllum aldri til að gera svona. Er of mikill þrýstingur á velsæmi eða hvað er að gerast. Þetta virðast oft vera einstaklingar sem eru brosmildir og aðalnúmerin í hóp. Hvers vegna. Líður þeim svo illa og vilja þeir ekki áta það. Er það skömm að líða illa. Þarf maður þá að fara á þunglyndislyf. Mér finnst þetta óhugnarleg þróun. Ekki hef ég neitt á móti lyfjum sem hjúkrunarfræðingur en svona lagað veldur mér áhyggjum. Að fólk taki líf sitt ekki í eigin hendur. Að fólk vilji of mikið vera eins og aðrir og verði kannski fyrir aðkasti ef það er ekki eins og fólk er flest. Hávaxinn, feitlaginn, ekki fyndinn, ekki alltaf í brjáluðu stuði, kannski óhress eða nöldrandi. Getur maður ekki farið fram á hreinskilni lengur í okkar samfélagi eða öllu heldur geta samfylgdar menn okkar ekki lengur tekið gagnrýni. Maður fer að vera hræddur við að segja skoðun sína, sá eða sú gæti bara farið heim og framið sjálfsmorð. Ég veit þetta er gróft en þetta er hreinskilni. Hvert stefnir þetta??? Ég segi bara til allra, mér þykir vænt um þig eins og þú ert. Ef maður er í fílu þá gengur það yfir!
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
fimmtudagur, maí 06, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home