föstudagur, ágúst 27, 2004

Hæ hæ
Nú erum við komin heim til okkar hingað til Coesfeld. Já það er alltaf gott að koma heim, sama hvar það er. Við tókum nú hana Þóru með okkur svo að aðskilnaðurinn við fjölskylduna væri ekki of mikill og við gætum trappað okkur niður. Sem reyndist vera ágætis ákvörðun því Nína er með persónulega hárgreiðsludömu nánast daglega í að slétta krullurnar úr hárinu.

En við erum bara búnar að hafa það gott. Við gátum fengið þvottavélina til að fara í gang eftir að við vorum búin að biðja öll til guðs og færa ýmsar fórnir sem ekki verður farið í saumana á hér á þessu bloggi. En það var svolítið fyndið að þá skyldum við sjá hvar bilunin var.

Innilegar hamingjuóskir með dömuna Systa og Siggi og Jói. Kveð að sinni en skrifa bráðum aftur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters