fimmtudagur, mars 10, 2005

Að hafa skoðun

Er merkilegt að hafa skoðun. Ég hef mjög oft skoðun á hlutum í kring um mig, hvort sem mér koma þeir við eða ekki. Hefur maður rétt á að hafa skoðun, eða á maður að hafa skoðun á einhverju. Það er svolítið sérstakt að stundum hefur maður ákveðna skoðun á einhverju en getur ekki rökstutt eða útskýrt af hverju maður hefur skoðunina. Eða veit maður af hverju maður hefur skoðunina en vill ekki segja það. Þetta er svolítið sérstakt mál.

Ég er oft búin að upplifa það á minni löngu ævi að það eru til aðstæður þar sem það er betra að segja ekki skoðun sína. En er það rétt? Er maður þá ekki að fara á bak við sjálfan sig? Í Þýskalandi er skoðun mín að það sé BEST að segja helst ALDREI skoðun sína!!! Já ótrúlegt en satt. Hvort sem er á vinnumarkaði, í skólanum, á meðal þýskra kvenna og bara já! Nema auðvitað að maður sé spurður um skoðun. Er það slæmt?

Svo eru til aðrir sem segja aldrei skoðun sína, er þeim alveg sama um allt?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters