þriðjudagur, mars 08, 2005

Skólamál

Loksins er kominn niðurstaða í þessi blessuðu skólamál á heimilinu. Það var hringt í okkur á föstudag og okkur sagt að Nína kæmist ekki í skólann sem okkur langaði að setja hana í. Okei, við að venjast þeirri tilhugsun alla helgina og Nína átti nú svosem í minnstum vandræðum við það en jæja. Svo var hringt í gærmorgun og þá á að setja fjórða bekk í árganginn í þennan skóla þannig að það komast allir að sem vilja. Það verða að vísu þrjátíu nemendur í hverjum bekk en það er sama það hefði hvort eð er í hvaða skóla sem er verið svona margir nemendur í bekk. Nína varð svo glöð að hún æpti yfir sig. Lukkulega gekk þetta að þessu sinni fyrir okkur.....

Nú að öðru leiti er ekki mikið að frétta, ég hlakka til að fara til tengdó um helgina og láta elda ofanímig og mína. Það er alltaf gaman að láta stjana við sig finnst mér. Líka þegar Alex eldar finnst mér gaman. Eins og nú um helgina, þá eldaði hann og ég át með bestu lyst. Á laugardagskvöldið var afmælisveisla hjá einni konunni í vinnunni. Hún varð fimmtug s.l.haust og var að halda upp á það núna, það var súpa, brauð, ostar, pylsur og bjór og vín. Helvíti fínt bara og gaman að fara út og hitta einhvern. Alveg finn ég hvað ég er orðin einangruð. Fer aldrei neitt svona út á meðal fólks. Hef kannski aldrei verið neitt mikið fyrir það svosem en samt. Já og ég var rétt nýkomin heim þegar liðið vaknaði á sunnudagsmorgun!!! Nú þarf ég bara að fara að drífa mig í eitthverja líkamsræktarstöð. Ég er búin að ætla það í nokkurn tíma en kem mér ekki af stað. Væri betra að vera með einhverjum sem færi líka. KAnnski næ ég að dobla Alex með mér, híhí, hann er nú svo sportlegur, fór á hjólinu í morgun í vinnuna, snjórinn varla farinn og að hjóla 15 km omg. Nóg um það í bili ég ætla að fara að gera eitthvað núna......bæbæ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters