Frestur á að skila húsinu útrunninn
Það er þá útrunninn frestur konunnar að skila húsinu sem hún keypti af mömmu í DAG. Mamma seldi húsið sitt í mars í fyrra og þetta fólk hefur ekki staðið í skilum. Kaupsamningi var riftað, málið er búið að fara fyrir dómstól og allt í lögfræðing. Hún á semsagt frá og með í dag að vera búin að tæma húsið og skila því. Ekki hefur farið mikið fyrir því að hún hafi reynt að fara eftir þessu. Hvað gerist í dag, mætir mamma á Reynigrund 24 á Akranesi með lögreglufylgd til að yfirtaka sína eign eða hvað? Bróðir minn ætlaði að safna liði en það er örugglega óþarfi!
Okkur getur öllum orðið á í lífinu, við lendum öll í hrakföllum. En þegar maður er kominn upp að háls í vandræði af hverju ekki að reyna að bjarga því sem hægt er að bjarga. Ég hef alltaf haldið því fram að það er til lausn á öllu, ef viljinn er fyrir hendi. Kannski er maður bara of góðhjartaður, eða lætur vaða of mikið yfir sig en samt. Ég trúi á það góða í manneskjunni. Öll eigum við slæma daga og allt það, ég er líka stundum í fýlu. Það er bara venjulegt held ég. Allt innan hins eðlilega ramma.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home