miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Foreldraviðtal

Var í dag hjá þremur kennurum í foreldraviðtali, af sjö, sem kenna Nínu þetta skólaárið. Það var mjög áhugavert. Hvert barn, eða foreldrar hvers barns fengu 5 heilar mínútur hjá hverjum kennara fyrir sig. Ein móðirin sagði við okkur, já við fórum bæði að ef barn manns ætti í einhverjum erfiðleikum þá væri foreldraviðtal ekki rétti vettvangurinn að ræða það. Þá þyrfti foreldri að panta viðtalstíma en hver kennari á vissan viðtalstíma vikulega þar sem hægt er að panta eftir þörfum. Við byrjuðum hjá tónlistarkennaranum. Nína er í tónlistarbekk en sumir bekkir, helmingurinn, í hennar tilfelli tveir bekkir af fjórum í árgangnum eru svo heppnir að vera tónlistarbekkir. Þá er farið í tónfræði og stofnuð hljómsveit. Nína væri reyndar eini nemandinn sem spilar á fiðlu en hún væri samt frökk að spila og gengi vel. Stundum hefði kennarinn það á tilfinningunni að hún væri áhugalaus í tíma! En að öðru leiti allt í góðu.

Síðan var förinni heitið til þýsku kennarans og Nína er mjög áhugasöm, opin og glaðvær stúlka sagði hún sem stæði sig vel í náminu. Já og meira vildi hún eiginlega ekki segja, þar vorum við innan við 5 mín. Nína er líka mjög hrifin af kennaranum, sem er kona á besta aldri, sennilega langt yfir 50 ára gömul. Hún sagði að Nína stæði á 2 í einkunn sem er næst besta einkunn.

Við vorum auðvitað mjög ánægð með þetta og glöð að hún væri ekki áhugalaus í þessu fagi en kennarinn virtist mjög viss í sinni sök um að hún hefði mikinn áhuga á þýsku. Sem er rétt. Hún les mikið og er með góðan orðaforða.

Þá kom bekkjarkennarinn. Hún kennir trúarbragðafræði og reikning. Hún var líka mjög jákvæð og sagði okkur að Nína væri bara frekar dæmigert einkabarn, hugsaði um sjálfa sig og ef hún vill frekar gera eitthvað annað en það sem á að gera þá gerir hún það, þangað til hún er stoppuð af. Hún stendur sig vel á prófum, 2 líka og skilur fljótt það sem verið er að útskýra. Já eins og maður geti ekki verið lukkulegur. Við erum svo ánægð og kennarinn taldi ástæðu til að segja að Nína ætti fyllilega heima í þessari tegund skóla. En ekki í iðnskóla eða hauptschule, eflaust hefur hún þurft að segja það við einhverja foreldra, því miður en barn þitt á ekki heima í þessum skóla. Það hefur ekki það sem til þarf að bera, já þetta er harður heimur fyrir 10 ára krakka sem eiga að vera sér viss hve mikils virði menntun er í dag og það að vera duglegur að læra. 1o ára.... hvar vorum við þegar við vorum tíu ára???? Á róló?

Jæja nóg af hóli en ég varð að koma þessu frá mér. Umsjónarkennarinn sagði að við þyrftum ekki að hafa nokkrar áhyggjur, Nína væri sterk stúlka og stæði undir kröfunum sem sem maður hefur. Hún væri reyndar ekki búin að komast í neinn hóp en væri vel liðin af krökkunum og félagslynd.

Skrýtið hvað maður er glaður að heyra þetta frá kennurum. Eins og það skipti einhverju máli hvaða umsögn þau fá? En það skiptir máli. Við viljum að börnin okkar standi sig vel, jafnvel betur en við gerðum. Skoðið eigin einkunnir..... já ég held að krakkarnir okkar séu öll rosalega dugleg að læra. Krakkar eru það í dag. Við eigum ekki að þurfa staðfestingu á því hvernig börnin okkar eru, við vitum hvernig börnin okkar eru og eigum að styrkja þau í því að vera þau sjálf og gera rétt í lífinu. Stór orð ekki satt!!!!!

5 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Til hamingju með vitnisburðinn :)Frábært hjá Nínu, auðvitað er hún einkabarn, en er hún dæmigert einkabarn? Meinti kennarinn þetta á neikvæðan hátt?

Þetta kemur mér ekki á óvart, Nína er svo skörp. Mér finnst líka skipta miklu máli að henni líði vel í skólanum, töluðu kennararnir ekkert um það?

5:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála Siggu, mér finnst líðanin skipta meginmáli, en henni hlýtur að líða vel víst að henni gengur svona vel;) Til hamingju með þetta, hún er sko dugleg stelpan.

Hvað er týpískt einkabarn???

Ég hef nú aldrei heyrt þetta með hann Snorra minn. Ætli ég eigi tvö einkabörn núna þar sem að það er svo langt á milli??? ;)

11:37 e.h.  
Blogger Helga said...

Hún talaði um að hún væri einkabarn í því samhengi að hún leitaði frekar í samræður við kennarana, sem sagt til fullorðinna heldur en til barnanna. Alls ekki neikvætt heldur sem útskýringu fyrir því að leita frekar til fullorðinna.

Nínu líður betur í skólanum en var i byrjun. Held að leiklistarhópurinn hafi þar töluvert að segja. En það verður sýning á leikritinu sem verið er að æfa 4.des.

12:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þá er Snorri nú týpískt einkabarn því hann hefur alltaf leitað eftir því að tala við fullorðna;)

Frábært að vera í leiklist. Maður lærir svo mikið af því.....Nína verður þá búin að læra helling áður en hún fer í unglingaleikritið í Grundó;)

12:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er nú kannski spurning um að búa sér til skilgreiningu á einkabarni eins og hentar okkur.... +
Hún hefur mjög gott af þessu leiklistarstarfi, það er gaman og krefjandi að bíða og bíða eftir ´því að atriðið sem hún er í kemur en gaman að standa á sviði fyrir framan áhorfendur. Ég er spennt að fara á sýninguna.

kveðja
Helga

1:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters